Sjö hlutir sem konum virkilega leiðist í rúminu

KynlífÞað er ekki alltaf á allt kosið þegar kemur að kynlífinu. Fólk hefur mismunandi væntingar og langanir sem stundum flækja málin, sérstaklega ef makar eða bólfélagar tala ekki saman.

Því það að tala um kynlíf og langanir hvors annars er nefnilega mikilvægur þáttur í því að samlífið sé gott og allir séu ánægðir.

Rætt í saumaklúbbum

En þegar kynlífið verður rútínukennt er voðinn vís. Þá fyrst fara konur að ranghvolfa augunum og kvarta við vinkonur sínar, og er meira en líklegt að eftirfarandi sjö atriði hafi verið rædd í saumaklúbbum víðsvegar um landið í gegnum tíðina.

Konur eru auðvitað alveg jafn ábyrgar í því halda lífi í glóðunum innan svefnherbergisveggjanna. En þrátt fyrir það látum við þessa sjö hluti sem konum virkilega leiðist í rúminu flakka.

Og hér eru þeir

 1. Að biðja um leyfi

Það er ekkert kynþokkafullt við það þegar maður biður eiginkonu sína um leyfi þegar hann vill elskast. Góður elskuhugi veit hvernig hann á að koma konu sinni til og láta hana vita að hann er í skapi fyrir smá fjör án þess að spyrja hana.

Það þarf stundum ekki meira en ákveðið augnaráð eða ákveðna snertingu til að koma okkur konum til. 

2. Að sjá hlutina fyrir

Ef þið hafið verið lengi saman gæti þetta verið vandamál. Ein ástæðan fyrir því að það var mikill hiti á milli ykkar þegar þið voruð að kynnast er sú að þið sáuð hlutina ekki fyrir, þið vissuð ekki alveg hverju þið áttuð von á. Ef þú vilt viðhalda svipaðri spennu í sambandinu verður þú að vera á tánum til að halda hlutunum ferskum.

Ekki vera hræddur við að reyna nýja hluti sem þið bæði getið notið. Til dæmis ef þú ert vanur að eyða fimm mínútum í forleik, eyddu þá fimmtán mínútum næst. Komdu henni á óvart, hún mun verða eitt spurningamerki en ákaflega ánægð með kallinn sinn.

3. Vélrænt kynlíf

Flestar konur eru sammála um það að kynlíf án tilfinninga er frekar leiðinlegt. Engin kona vill láta höndla sig eins og uppblásna dúkku. Það er ekki verið að segja að kynlífið þurfi alltaf að vera tilfinningaríkt. En konur eru konur og við viljum ekkert meira en það að það sé komið fram við okkur sem slíkar. Vertu því þessi yndislegi elskuhugi og njóttu virkilega ásta með henni.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

4. Það er aldrei farið„the extra mile“

Bæði konum sem körlum leiðist rútínukennt kynlíf, þess vegna er nauðsynlegt svona annað slagið alla vega að fara aðeins lengra en venjulega.

Við erum að tala um rómantík, við konur elskum þegar karlar eru rómantískir. Skildu til dæmis eftir miða sem lýsir því hvað þú vilt að hún geri við þig og hverju þú óskar eftir að hún sé í þegar þú kemur heim, hún mun endurgjalda þér veglega til baka Láttu hugmyndaflugið ráða.

5. Alltaf sami staðurinn

Ef að konan þín hefur lagt allar sprungurnar í svefnherbergisloftinu á minnið ertu í vanda. En ekki hafa áhyggjur, breyttu bara aðeins um stað. Farðu með hana í sturtuna, á eldhúsborðið eða bílinn þinn. Enn og aftur láttu hugmyndaflugið ráða.

6. Of mikil læti – eða of lítil

Of háar stunur eða einhver orð sem þú ert vanur að fara með geta verið rosalega þreytandi. Reyndu að finna meðalveginn. Þú getur alveg notið þín án þess að allir nágrannarnir viti að þú ert að fá það. Eins er þreytandi þegar það heyrist ekkert í ykkur

7. Þið gerið aldrei neitt nýtt

Vaninn getur orðið versti óvinurinn í svefnherberginu. Þetta kannast margir við, sérstaklega þegar fólk er búið að vera lengi í sambandi. Það er eins og spennan dvíni og áhuginn hreinlega minnki. Snúið þessari þróun við með því að vera dugleg að prófa nýjar stellingar, fara í hlutverkaleiki (vera óhrædd að nota búninga) og framkvæma fantasíurnar.

Hér er spurningin enn einu sinni um að láta hugmyndaflugið ráða. Og hvað þið viljið!

Þegar öllu er á botninn hvolft er þetta oft spurning um að vera hvatvís og koma á óvart.

 

 

 

 

Sigga Lund

Greinin birtist á foxnews.com

Deildu þessari grein á
  • Nýtt
  • Heilsa og útlit
  • Lífið og lífsstíll
  • Matur og drykkur
  • Menning
  • Myndbönd

Það er gott að kyssa – En veistu hvað kossaflensið getur gert?

Hvað jafnast á við kossaflens og kelerí? Ekkert að mínu mati, þrátt...

Einstaklega einfaldur og fljótlegur eftirréttur

Þegar strákarnir mínir voru litlir bjó ég stundum til eftirrétt handa...

Þessir 9 hlutir eru það besta í lífinu – Og þeir kosta ekki krónu

Öll vitum við að tilvera okkar hér á jörðinni er takmörkuð, en allt...

Þrjár einfaldar hátíðargreiðslur fyrir stutt hár

Þrátt fyrir að hár þitt sé frekar stutt er ekki þar með sagt að...

Þessi safi er alveg hreint frábær við uppþembu og bólgum í líkamanum

Þrátt fyrir að vatnsmelónur séu 92% vatn innihalda þær engu að...

Japönsk vatnsmeðferð sem talin er allra meina bót

Þessi vatnsmeðferð er alveg sáraeinföld, en hún er kennd við Japan...

Frábært trix til að steikja beikon á pönnu – Án alls sóðaskapsins

  Ef þér finnst beikon gott og færð aldrei nóg af því… en...

Bíddu, er hún 65 ára? Og hvert er leyndarmálið?

Leikkonan Dana Delany lítur alveg ótrúlega vel út miðað við aldur....

Þrjár einfaldar hátíðargreiðslur fyrir stutt hár

Þrátt fyrir að hár þitt sé frekar stutt er ekki þar með sagt að...

Japönsk vatnsmeðferð sem talin er allra meina bót

Þessi vatnsmeðferð er alveg sáraeinföld, en hún er kennd við Japan...

Vissir þú að ananas hefur lækningamátt?

Ananas er stútfullur af góðum næringarefnum og þá meinum við...

Þessi greiðsla tekur fimm mínútur – Ótrúlega flott

  Já takk, við erum sko meira en til í þessa flottu greiðslu sem...

Konur hrjóta líka – Þótt þær haldi öðru fram

Konur um og yfir fimmtugt kvarta frekar en karlar á sama aldri yfir...

Afar mikilvægt fyrir allar konur – og þá sérstaklega konur yfir fertugt

Mælt er með því að hver kona skoði sjálf og þreifi brjóst sín í...

Hættulegra að sofa of mikið en of lítið

Það greinilega borgar sig ekki miðað við nýlega rannsókn að snúa...

Höfuðverkur og konur yfir fertugt – Hver er ástæðan fyrir höfuðverknum?

Afar algengt er að konur yfir fertugt þjáist af höfuðverk sem rekja má...

Það er gott að kyssa – En veistu hvað kossaflensið getur gert?

Hvað jafnast á við kossaflens og kelerí? Ekkert að mínu mati, þrátt...

Þessir 9 hlutir eru það besta í lífinu – Og þeir kosta ekki krónu

Öll vitum við að tilvera okkar hér á jörðinni er takmörkuð, en allt...

Bíddu, er hún 65 ára? Og hvert er leyndarmálið?

Leikkonan Dana Delany lítur alveg ótrúlega vel út miðað við aldur....

Eyðir þú oft peningum í óþarfa? – Hér eru ráð við því

Það er ótrúlegt hvað við getum stundum verið dugleg að eyða...

Snilldar ráð til að gera háu hælana þægilegri

Hvaða kona elskar ekki skó og háa hæla? Þrátt fyrir að það geti...

Karlmenn eru svo miklu mýkri en margar konur halda

Alveg eins og karlmenn eiga oft erfitt með að skilja okkur konur þá...

Lætur þú þarfir annarra alltaf ganga fyrir?

Ert þú týpan sem lætur alltaf aðra ganga fyrir en situr svo sjálf á...

Eru fimmtugar konur í dag eins og fertugar hér áður?

Íslenskar konur eiga góða möguleika á því að ná háum aldri og við...

Einstaklega einfaldur og fljótlegur eftirréttur

Þegar strákarnir mínir voru litlir bjó ég stundum til eftirrétt handa...

Þessi safi er alveg hreint frábær við uppþembu og bólgum í líkamanum

Þrátt fyrir að vatnsmelónur séu 92% vatn innihalda þær engu að...

Frábært trix til að steikja beikon á pönnu – Án alls sóðaskapsins

  Ef þér finnst beikon gott og færð aldrei nóg af því… en...

Bakaðar og gómsætar pepperoni pizza kartöflur

Fáir slá hendinni á móti brakandi pepperoni pizzu, eða bakaðri...

Gómsætur bakaður Brie í áramótaveisluna

Bakaðir ostar eru í miklu uppáhaldi hjá mér og geri ég þannig...

Dásamlegt jóla Tiramisu úr smiðju Jamie Oliver

Það er algjörlega ómissandi að fá góðan eftirrétt um jólin. Hvort...

Æðislegir snickersbitar á aðventu

Nú á aðventu er smákökubakstur á fullu á mörgum heimilum. Margir...

Gómsætar jólalegar súkkulaðikökur með Bismark súkkulaði

Þær gerast nú varla mikið jólalegri smákökurnar… hvað þá...

Þetta eru tuttugu rómantískustu bíómyndir allra tíma

Hvað er meira kósý en að kúra uppi í sófa þegar kalt er úti og...

Tíu frábærar bíómyndir sem fá þig til að gleyma lífsins áhyggjum

Þegar veðrið er ekki upp á sitt besta, maður er jafnvel lokaður inni...

Þetta eru eftirminnilegustu kossar allra tíma

Kossar í bíómyndum verða gjarnan eftirminnilegir – og oft eru...

Jólalög og ljúfir tónar á Þorláksmessu í Hörpu – Frítt inn og allir velkomnir

  Margir leggja leið sína í miðbæ Reykjavíkur á Þorláksmessu...

Mahler og Mussorgsky á Óperudögum í Hannesarholti

  Þau Aron Axel Cortes barítónsöngvari og Hrönn Þráinsdóttir...

Skelltu þér á ókeypis tónleika Óperunnar í Hörpu – Notalegt í hádeginu

Íslenska óperan býður upp á í vetur, eins og undanfarna vetur,...

Svona hefurðu aldrei heyrt lagið Jolene áður… frábær A capella flutningur

Dolly Parton er afskaplega hæfileikarík og þá ekki eingöngu sem...

Gætir þú lifað án tónlistar?

Hvernig væri tilveran án tónlistar? Tónlist er stór hluti af menningu...

Langt leidd af Alzheimer en kemur alltaf tilbaka þegar hún syngur

Það er afar sárt fyrir aðstandendur Alzheimers-sjúklinga að horfa upp...

Er eitthvað krúttlegra en þetta? – Gleðipilla dagsins!

Lítil börn og hundar eru auðvitað bara dásemd. Og þetta litla krútt...

Faðir brúðarinnar neitaði að halda ræðu og gerði þetta í staðinn

Faðir brúðarinnar ákvað að halda ekki hefðbundna ræðu í...

Tónlist gerir kraftaverk fyrir Alzheimer-sjúklinga – Sjáðu myndbandið

Þetta fallega spænska myndband sýnir hversu stórkostleg áhrif tónlist...

85 ára afi stelur senunni í brúðkaupi í hlutverki blómastúlku

Þetta myndband bræðir mann alveg. En þessi 85 ára afi stal senunni í...

Þessi litla ódýra jólaauglýsing hefur gjörsamlega brætt netheima

Það á oftar en ekki við að minna er meira og það sannar þessi litla...

Dáleiddu salinn og dómarana með töfrandi hreyfingum – Alveg magnað

Þessi hópur stúlkna frá Líbanon, 31 talsins, eru keppendur í nýjustu...

Stóð uppi sem sigurvegari 89 ára gamall – Aldrei of seint að láta draumana rætast

Við höfum lengi talað fyrir því að maður er aldrei, nei ALDREI, of...