Sex algeng mistök sem við gerum í sturtunni varðandi húð og hár

Sturtuvenjur okkar flestra eru eitthvað sem við gerum nokkuð sjálfvirkt og án þess að hugsa það eitthvað sérstaklega. Við skrúfum frá sturtunni og síðan er restin sett á sjálfstýringu.

En það er vel hugsanlegt að þú sért hvorki að gera húð þinni né hári neitt gott með sturtuferðunum. Því þótt þú sért að þvo í burtu svita og skít þá geta venjur þínar um leið haft neikvæð áhrif á húð og hár.

Hér eru 6 algeng mistök sem við gerum varðandi sturtuferðirnar

1. Að nota of heitt vatn

Við getum líklega flest verið sammála því að það er fátt notalegra en vel heit sturta. En þótt notalegt sé að fá heitt vatnið á skrokkinn þá er það víst ekki gott fyrir húð og hár.

Heitt vatnið sviptir hárið sinni náttúrulegu olíu sem gerir það að verkum að hárið verður þurrt og gjarnt á að slitna.

Þetta á einnig við um húðina. En heitt vatnið þurrkar húðina og þá myndast gjarnan kláði.

Ef þú vilt komast hjá þessu hafðu þá vatnið volgt. Og já við vitum að það er ekki næstum eins notalegt.

2. Að vera of lengi í sturtunni

Hver kannast ekki við þetta?

Það getur verið erfitt að skrúfa fyrir heitt vatnið og fara út í kalt loftið. En langar heitar sturtuferðir eru ekki góðar fyrir húðina og hárið – og er það af sömu ástæðu og hér á undan.

Ylvolg og stutt sturta er málið og er ágætt að miða við svona 5 mínútur.

3. Að nota of mikið af efnum/vörum

Þú þarft ekki að fylla lófann af sjampói til að þvo hárið. Og ef þú gerir það ertu að nota allt of mikið af því. Magnið sem ætti að miða við er eins og stór dropi en fer auðvitað eftir sídd og þykkt hárs. Fyrir sítt, þykkt hár er til dæmis ágætt að miða við stærðina á tíkalli og fyrir stutt hár má miða við stærðina á fimmkalli.

Takmarkaðu líka sápuna á líkamann og gott er hafa í huga að minna er meira. Því ef þú notar of mikið þessum vörum ertu að gera húðina og hárið þurrara en gott er.

4. Að þvo hárið allt of oft

Skoðaðu það hvort nauðsynlegt sé að þvo hárið í hverri einustu sturtuferð. Ef hárið er þvegið of oft eru allar líkur á því að það verði þurrt og óviðráðanlegt. Svo ekki sé nú talað um ef þú notar hárblásara til að þurrka hárið eftir sturtuna. En hitinn af blásaranum fer ekki vel með hárið.

Í dag má fá virkilega góð þurrsjampó til að nota á milli þvotta svo það ætti ekki að vera vandamál að hafa hárið samt fínt og huggulegt án þess að það sé þvegið daglega.

5. Að nota venjulegt sápustykki

Notkun venjulegra sápustykkja geta þurrkað húðina mikið.

Ástæðan er sú að slíkar sápur hafa oftast hátt pH-gildi sem er of mikið fyrir húðina. Auk þess geta sápustykkin borið með sér sýkla, sérstaklega þegar fleiri en einn nota sama stykkið.

6. Að næra húðina ekki strax á eftir

Ekki geyma það að bera nærandi krem á húðina um leið og þú kemur úr sturtunni. Þurrkaðu húðina mjúklega með handklæði og alls ekki nudda hana of fast með handklæðinu.

Berðu síðan gott krem á allan líkamann strax að því loknu en ekki fara að gera eitthvað annað áður og bera síðan á þig. Þetta skiptir máli upp á að loka rakann og næringuna inni.

Deildu þessari grein á
  • Nýtt
  • Heilsa og útlit
  • Lífið og lífsstíll
  • Matur og drykkur
  • Menning
  • Myndbönd

Það er gott að kyssa – En veistu hvað kossaflensið getur gert?

Hvað jafnast á við kossaflens og kelerí? Ekkert að mínu mati, þrátt...

Einstaklega einfaldur og fljótlegur eftirréttur

Þegar strákarnir mínir voru litlir bjó ég stundum til eftirrétt handa...

Þessir 9 hlutir eru það besta í lífinu – Og þeir kosta ekki krónu

Öll vitum við að tilvera okkar hér á jörðinni er takmörkuð, en allt...

Þrjár einfaldar hátíðargreiðslur fyrir stutt hár

Þrátt fyrir að hár þitt sé frekar stutt er ekki þar með sagt að...

Þessi safi er alveg hreint frábær við uppþembu og bólgum í líkamanum

Þrátt fyrir að vatnsmelónur séu 92% vatn innihalda þær engu að...

Japönsk vatnsmeðferð sem talin er allra meina bót

Þessi vatnsmeðferð er alveg sáraeinföld, en hún er kennd við Japan...

Frábært trix til að steikja beikon á pönnu – Án alls sóðaskapsins

  Ef þér finnst beikon gott og færð aldrei nóg af því… en...

Bíddu, er hún 65 ára? Og hvert er leyndarmálið?

Leikkonan Dana Delany lítur alveg ótrúlega vel út miðað við aldur....

Þrjár einfaldar hátíðargreiðslur fyrir stutt hár

Þrátt fyrir að hár þitt sé frekar stutt er ekki þar með sagt að...

Japönsk vatnsmeðferð sem talin er allra meina bót

Þessi vatnsmeðferð er alveg sáraeinföld, en hún er kennd við Japan...

Vissir þú að ananas hefur lækningamátt?

Ananas er stútfullur af góðum næringarefnum og þá meinum við...

Þessi greiðsla tekur fimm mínútur – Ótrúlega flott

  Já takk, við erum sko meira en til í þessa flottu greiðslu sem...

Konur hrjóta líka – Þótt þær haldi öðru fram

Konur um og yfir fimmtugt kvarta frekar en karlar á sama aldri yfir...

Afar mikilvægt fyrir allar konur – og þá sérstaklega konur yfir fertugt

Mælt er með því að hver kona skoði sjálf og þreifi brjóst sín í...

Hættulegra að sofa of mikið en of lítið

Það greinilega borgar sig ekki miðað við nýlega rannsókn að snúa...

Höfuðverkur og konur yfir fertugt – Hver er ástæðan fyrir höfuðverknum?

Afar algengt er að konur yfir fertugt þjáist af höfuðverk sem rekja má...

Það er gott að kyssa – En veistu hvað kossaflensið getur gert?

Hvað jafnast á við kossaflens og kelerí? Ekkert að mínu mati, þrátt...

Þessir 9 hlutir eru það besta í lífinu – Og þeir kosta ekki krónu

Öll vitum við að tilvera okkar hér á jörðinni er takmörkuð, en allt...

Bíddu, er hún 65 ára? Og hvert er leyndarmálið?

Leikkonan Dana Delany lítur alveg ótrúlega vel út miðað við aldur....

Eyðir þú oft peningum í óþarfa? – Hér eru ráð við því

Það er ótrúlegt hvað við getum stundum verið dugleg að eyða...

Snilldar ráð til að gera háu hælana þægilegri

Hvaða kona elskar ekki skó og háa hæla? Þrátt fyrir að það geti...

Karlmenn eru svo miklu mýkri en margar konur halda

Alveg eins og karlmenn eiga oft erfitt með að skilja okkur konur þá...

Lætur þú þarfir annarra alltaf ganga fyrir?

Ert þú týpan sem lætur alltaf aðra ganga fyrir en situr svo sjálf á...

Eru fimmtugar konur í dag eins og fertugar hér áður?

Íslenskar konur eiga góða möguleika á því að ná háum aldri og við...

Einstaklega einfaldur og fljótlegur eftirréttur

Þegar strákarnir mínir voru litlir bjó ég stundum til eftirrétt handa...

Þessi safi er alveg hreint frábær við uppþembu og bólgum í líkamanum

Þrátt fyrir að vatnsmelónur séu 92% vatn innihalda þær engu að...

Frábært trix til að steikja beikon á pönnu – Án alls sóðaskapsins

  Ef þér finnst beikon gott og færð aldrei nóg af því… en...

Bakaðar og gómsætar pepperoni pizza kartöflur

Fáir slá hendinni á móti brakandi pepperoni pizzu, eða bakaðri...

Gómsætur bakaður Brie í áramótaveisluna

Bakaðir ostar eru í miklu uppáhaldi hjá mér og geri ég þannig...

Dásamlegt jóla Tiramisu úr smiðju Jamie Oliver

Það er algjörlega ómissandi að fá góðan eftirrétt um jólin. Hvort...

Æðislegir snickersbitar á aðventu

Nú á aðventu er smákökubakstur á fullu á mörgum heimilum. Margir...

Gómsætar jólalegar súkkulaðikökur með Bismark súkkulaði

Þær gerast nú varla mikið jólalegri smákökurnar… hvað þá...

Þetta eru tuttugu rómantískustu bíómyndir allra tíma

Hvað er meira kósý en að kúra uppi í sófa þegar kalt er úti og...

Tíu frábærar bíómyndir sem fá þig til að gleyma lífsins áhyggjum

Þegar veðrið er ekki upp á sitt besta, maður er jafnvel lokaður inni...

Þetta eru eftirminnilegustu kossar allra tíma

Kossar í bíómyndum verða gjarnan eftirminnilegir – og oft eru...

Jólalög og ljúfir tónar á Þorláksmessu í Hörpu – Frítt inn og allir velkomnir

  Margir leggja leið sína í miðbæ Reykjavíkur á Þorláksmessu...

Mahler og Mussorgsky á Óperudögum í Hannesarholti

  Þau Aron Axel Cortes barítónsöngvari og Hrönn Þráinsdóttir...

Skelltu þér á ókeypis tónleika Óperunnar í Hörpu – Notalegt í hádeginu

Íslenska óperan býður upp á í vetur, eins og undanfarna vetur,...

Svona hefurðu aldrei heyrt lagið Jolene áður… frábær A capella flutningur

Dolly Parton er afskaplega hæfileikarík og þá ekki eingöngu sem...

Gætir þú lifað án tónlistar?

Hvernig væri tilveran án tónlistar? Tónlist er stór hluti af menningu...

Langt leidd af Alzheimer en kemur alltaf tilbaka þegar hún syngur

Það er afar sárt fyrir aðstandendur Alzheimers-sjúklinga að horfa upp...

Er eitthvað krúttlegra en þetta? – Gleðipilla dagsins!

Lítil börn og hundar eru auðvitað bara dásemd. Og þetta litla krútt...

Faðir brúðarinnar neitaði að halda ræðu og gerði þetta í staðinn

Faðir brúðarinnar ákvað að halda ekki hefðbundna ræðu í...

Tónlist gerir kraftaverk fyrir Alzheimer-sjúklinga – Sjáðu myndbandið

Þetta fallega spænska myndband sýnir hversu stórkostleg áhrif tónlist...

85 ára afi stelur senunni í brúðkaupi í hlutverki blómastúlku

Þetta myndband bræðir mann alveg. En þessi 85 ára afi stal senunni í...

Þessi litla ódýra jólaauglýsing hefur gjörsamlega brætt netheima

Það á oftar en ekki við að minna er meira og það sannar þessi litla...

Dáleiddu salinn og dómarana með töfrandi hreyfingum – Alveg magnað

Þessi hópur stúlkna frá Líbanon, 31 talsins, eru keppendur í nýjustu...

Stóð uppi sem sigurvegari 89 ára gamall – Aldrei of seint að láta draumana rætast

Við höfum lengi talað fyrir því að maður er aldrei, nei ALDREI, of...