Grátt hár hefur undanfarin misseri verið vinsælt og sífellt fleiri konur kjósa að láta gráu hárin óáreitt og sumar láta jafnvel lita hár sitt grátt.
Ef grátt hár er inni hjá konum hlýtur það líka að eiga við hár karlmanna. Líkt og konurnar láta margir menn einnig lita á sér hárið þegar það fer að grána. Það er þó ekki jafn algengt og virðast þeir ekki vera alveg jafn viðkvæmir fyrir gráu hárunum og konurnar.
Gráa hárið gæti samt kallað á nýja greiðslu
En það sem menn mega gæta sín á er að gráa hárið er öðruvísi en hárið sem þeir voru með áður. Það þarfnast góðrar umhirðu og erfiðara getur verið að eiga við það þar sem það er yfirleitt grófara, stífara og þurrara. Gráa hárið gæti jafnvel kallað á nýja greiðslu. Og það krefst líka annars konar umhirðu enda þurfa sumir sem hafa jafnvel aldrei notað nein efni í hárið að byrja á því þegar gráu hárunum fjölgar – svo þeir ráði við hárið.
Margir eitursvalir menn skarta gráum skuggum og silfurgráu hári. Sumir þeirra hafa verið í silfrinu til fjölda ára. Og allir eiga þeir það sameiginlegt að gera sér fulla grein fyrir því að greiðslan skiptir miklu máli.
Hér eru nokkrir frægir, flottir og svalir.
Richard Gere (69) er hálfgerður holdgervingur gráa hársins enda búinn að vera silfraður lengi.
George Clooney (57) hefur tekið gráa hárinu fagnandi enda fer það honum einstaklega vel.
Pierce Brosnan (65) veit að greiðslan skiptir máli og er alltaf svalur.
Patrick Dempsey (53) eða McDreamy eins og hann er gjarnan kallaður þykir hafa fallegt hár.
John Slattery (56) úr Mad Men þáttunum þykir kynþokkafullur með sína gráu lokka.
Ben Affleck (46) er byrjaður að grána og það fer honum vel.