Eru kolvetni slæm fyrir heilsu okkar? Og er lykillinn að því að halda sér hraustum og grönnum sú að sleppa neyslu kolvetna?
Sé miðað við vinsæla matarkúra virðist málið vera að sleppa kolvetnum alveg úr fæðunni – og eru ófáir á þannig mataræði í dag.
En getur verið að það sé alls ekki gott heilsunnar vegna að sleppa kolvetnum?
Hvað segja vísindin?
Rannsókn sem framkvæmd var af National Center for Global Health and Medicine í Tókýó í Japan leiddi í ljós að einstaklingar sem neyta mikilla kolvetna en lítið af fitu eru í minni áhættu á að deyja fyrir aldur fram – og þá sérstaklega sé litið til hjarta- og æðasjúkdóma. En það eru einmitt þeir sjúkdómar sem draga flesta til dauða með hærri aldri.
Rannsóknin spannaði yfir 15 ár og var fylgst með heilsufari meira en 80.000 einstaklinga í Japan. Mataræði Japana einkennist af lítilli fitu en þeir neyta hins vegar töluverða kolvetna. Þá labba Japanir einnig mikið sem er afar mikilvægt heilsunni en að meðaltali ganga þeir yfir 7000 skref á dag. Hjartasérfræðingar segja þessa þætti vega þungt í heilsufari þeirra, það er að segja samsetning fæðunnar og hreyfingin.
Þeir langlífustu og hraustustu
Í öllu þessu er mikilvægt að benda á að Japanir eru í öðru sæti yfir langlífustu þjóðir í heimi og áhugavert er að sjá að Ítalir eru í þriðja sæti með öll sín kolvetni.
Ítalska þokkagyðjan Sophia Loren hefur til dæmis iðullega sagt að hún eigi spagettí allt sitt að þakka.