Sigga Beinteins er klárlega með eina bestu rödd landsins og verður hún bara betri með aldrinum. En á því áttuðum við okkur einmitt fyrir ári síðan á jólatónleikum hennar í Hörpu. Og við ætlum alveg að vera hreinskilin með það að hún kom okkur virkilega á óvart. Hún hefur bara aldrei verið betri og greinilegt að aldurinn fer vel með hana – alveg eins og gott vín 🙂
Jólatónleikar í Hörpu 4. og 5. desember
Við hér á Kokteil mælum með jólatónleikum Siggu Beinteins í Eldborgarsal Hörpu dagana 4. og 5. desember.
Þetta eru sjöundu jólatónleikar Siggu á ferlinum og annað árið í röð sem þeir verða haldnir í Hörpu – sem gerir þá enn hátíðlegri. Við vitum til þess að í fyrra komust færri að en vildu og er því ekki seinna vænna en að ná sér í miða.
Með henni á tónleikunum í ár verða góðir gestir, tenórinn yndislegi hann Gissur Páll, stuðboltinn Páll Óskar og reynsluboltinn Selma Björnsdóttir. Og ekki má gleyma landsliði frábærra íslenskra tónlistarmanna.
Við megum alveg örugglega búast við einlægum og hlýjum tónleikum því það voru þeir svo sannarlega í fyrra. En þar sagði Sigga okkur litlar sögur af sjálfri sér milli laga – og gæsahúð hríslaðist niður bakið við mörg laganna.
Mikið hlökkum við til.
Fylgist með því á næstunni munum við bjóða tveimur heppnum með okkur á tónleikana.
Hér eru Sigga og Páll Óskar á tónleikum hennar árið 2012.