Búðu þig undir að fá gæsahúð því Jordan Smith, 21 árs þáttakandi í The Voice í Bandaríkjunum, gjörsamlega rúllar hér upp Adele-laginu „Set Fire to the Rain“.
Dómarar og áheyrendur voru gjörsamlega orðlausir eftir eina glæsilegustu frammistöðu sem sést hefur í þættinum.
Við þurfum varla að taka það fram að auðvitað hafði hann sigur yfir andstæðingi sínum og komst áfram í keppninni.
Það verður gaman að fylgjast með Jordan.