Það er alltaf notalegt að hlýða á Jólasöngva Kórs Langholtskirkju rétt fyrir jólin – og þar upplifir maður hina sönnu jólastemningu. Þetta voru fyrstu jólatónleikarnir sem við hér á Kokteil upplifðum enda hafa þeir verið haldnir í 38 ár.
Eivør okkar allra
Og nú hefur Jólasöngvum borist óvæntur liðstyrkur en Eivør Pálsdóttir verður gestur kórsins á fyrstu tveimur tónleikunum, föstudaginn 18. desember kl. 23 og laugardaginn 19.desember kl. 20.
Þrennir tónleikar verða í ár, en þeir síðustu verða sunnudaginn 20. Desember, einnig klukkan 20. Þar munu eins og á tveimur fyrri tónleikunum koma fram Kór Langholtskirkju og Gradualekór Langholtskirkju undir stjórn Árna Harðarsonar, sem stekkur í skarðið fyrir Jón Stefánsson vegna veikinda.
Andri Björn Róbertsson sem er að slá í gegn í Bretlandi
Aðrir einsöngvarar á Jólasöngvum í ár verða Benedikt Kristjánsson, Andri Björn Róbertsson og Ólöf Kolbrún Harðardóttir. Einsöngvari á táknmáli er Kolbrún Völkudóttir. Einnig koma fram einsöngvarar úr báðum kórunum.
Aðdáendur Eivarar gleðjast vafalaust yfir innkomu hennar í þennan glæsilega hóp en hún verður með á tónleikunum á föstudeginum og laugardeginum eins og fyrr sagði.
Þetta verða þrítugustu og áttundu Jólasöngvarnir við kertaljós og að vanda er boðið upp á rjúkandi jólasúkkulaði og piparkökur í hléi. Mikill jólaandi ríkir á tónleikunum og eru þeir fjölmargir sem geta ekki hugsað sér upphaf jólahátíðarinnar án þess að mæta á Jólasöngva.
Hægt er að ná sér í miða á tónleikana á tix.is