Sjónvarpsþátturinn The Voice hefur verið vinsæll bæði í Bandaríkjunum sem og Evrópu. Nokkrar þjóðir hafa bætt við barnaútgáfu af þættinum þar sem þáttakendur eru á aldrinum 8 til 14 ára.
Hér sést hvar hin 13 ára Solomia tekur þátt í þýsku útgáfunni af þessum vinsæla þætti. Hún syngur Time To Say Goodbye sem Andrea Bocelli gerði vinsælt og er algjör klassík enda eitt mesta selda lag allra tíma.
Um leið og hún hóf upp raust sína náði hún allri athyglinni og dómararnir gjörsamlega misstu sig yfir henni – og gátu ekki haldið aftur af tárunum.