Hversu oft lendir maður ekki í því að mann langar í avókadó eða þá að það þarf að nota það í ákveðinn rétt og ávöxturinn er grjótharður og óþroskaður?
Hvað er til ráða?
Ég þekki þetta alla vega ansi vel. Og eins og við vitum þá er ómögulegt að nota hart avókadó. Bæði er erfitt að eiga við það og eins er bragðið af því óþroskuðu ekki jafn gott.
En það er ekki eins og maður geti gengið að þroskuðu avókadó í búðinni. Þá geta góð ráð verið dýr. Ein leið er jú að setja ávöxtinn í bréfpoka með banana eða epli og bíða eftir að hann þroskist – en það getur tekið heilan sólarhring.
En hér er komin góð og einföld lausn við þessu. Og það tekur ekki nema nokkrar mínútur að fá mjúkt og kremkennt avókadó. Snilld!
Það sem þarf
Álpappír
Ofnplötu eða mót
… og auðvitað avókadó
Aðferð
Ofninn hitaður að 100 gráðum.
Avókadó er vafið inn í álpappír.
Lagt á ofnplötuna eða í mótið.
Sett inn í ofn í 10 mínútur, eða þar til það er orðið mjúkt.
Ef það er mjög óþroskað og hart tekur þetta lengri tíma.
Takið út úr ofninum og látið kólna inni í ísskáp.
Hér er þetta útskýrt frekar
jona@kokteill.is