Oddur Jónsson er í dag einn af okkar bestu söngvurum. Hann sló í gegn í hlutverki Rodrigo í Don Carlo hjá Íslensku óperunni í fyrra og var í kjölfarið útnefndur Bjartasta vonin á Íslensku tónlistarverðlaununum. Og skyldi engan undra þar sem Oddur er bæði með frábæra rödd og mikla útgeislun á sviði.
Ókeypis tónleikar
Þessa dagana heillar Oddur gesti Íslensku óperunnar í hlutverki sínu sem Figaro í Rakaranum frá Sevilla. En fyrir það hlutverk hefur hann fengið glimrandi góða dóma og að öðrum ólöstuðum finnst okkur óhætt að segja að hann sé stjarna sýningarinnar. En hér fer maður með mikinn sviðssjarma.
Þriðjudaginn, 3. nóvember, er hægt að heyra og sjá þennan flotta söngvara á tónleikum í Hafnarborg í Hafnarfirði. Á tónleikunum, sem bera hið skemmtilega heiti Illmenni og fórnarlömb, ætlar Oddur að flytja aríur eftir G. Donizetti og Mozart.
Ókeypis er á tónleikana sem hefjast kl. 12:00 og standa yfir í um hálfa klukkustund. Þeir eru öllum opnir á meðan húsrúm leyfir en húsið opnar kl. 11:30.
Þetta verður án efa skemmtilegt!