Hún var ótrúlega hæfileikarík lítil stelpa og eitt mesta krútt allra tíma. Hér syngur hún lagið When I Grow Up (Þegar ég verð stór) og bregður sér í nokkur gervi.
Shirley gat sungið, leikið og dansað og stundum gerði hún allt þetta á sama tíma.
Shirley Temple var fædd árið 1928 og lést fyrir rúmu ári síðan þá 85 ára að aldri. Í þessu myndbandi er hún um 7 ára gömul – og þvílíkir hæfileikar!
Við brostum allan hringinn allan tímann meðan við horfðum á þetta myndband. Alveg yndislegt 🙂