Bandarísku tónlistarverðlaunin voru afhent í Los Angeles í gær, þann 22. nóvember.
Það sem vakti hvað mesta athygli var ræða leikarans Jared Leto og söngur Celine Dion. En hvoru tveggja var í minningu fórnarlambanna í hryðjuverkaárásunum í París í síðustu viku.
Hér má sjá fallega ræðu Jared og söng Celine – en meðan á flutningi stóð mátti vart sjá þurrt auga í salnum (söngurinn hefst á 3:20 mínútu).
Tregafullt og fallegt!
Forsíðumynd Getty Images