Ostar og veislur smellpassa saman og ekki er verra ef hægt er að gera eitthvað spennandi við ostana í stað þess að henda þeim bara beint á bakka.
Þar sem ég er einstaklega veik fyrir ostum eru þeir oft á borðum hjá mér og eru hvítmygluostar meðal uppáhalds ostanna.
Innbakaðir ostar
Þessi uppskrift hér vekur upp nostalgíuna hjá mér enda voru svona innbakaðir ostar vinsælir fyrir margt löngu. Og það er alveg kominn tími á þá aftur!
Í uppskriftina er gott að nota brie osta en auðvitað passar camembert fullkomlega í þetta.
Hér eru þrjár frábærar hugmyndir og þótt þú prófir ekki nema eina lofa ég að þú verður ekki svikin/n.
Þetta er alls ekki flókið, er fallegt á borði og alveg svakalega gott!
Það sem þarf
Brie-ost eða camembert
Smjördeig (fæst frosið í verslunum)
Fíkjumauk/sulta
Apríkósusulta
Hunang
Hnetur (ég nota pekanhnetur)
1 egg
Aðferð I
Takið smjördeigið og leggið á borð. Það gæti þurft að fletja deigið aðeins út með kökukefli.
Smyrjið vel af fíkjumauki ofan á ostinn og leggið hann svo á hvolf ofan á deigið.
Pakkið ostinum síðan vel inn í deigið.
Leggið þá ostinn á bökunarplötu klædda með smjörpappír eða setjið hann í lítið eldfast mót. Gætið þess að snúa þeirri hlið niður þar sem brotið er upp á deigið.
Ef afgangur er af smjördeiginu er stórsniðugt að nota piparkökumót og búa til stjörnur eða annað slíkt og leggja ofan á deigið til skrauts.
Hrærið eggið í skál með gaffli og notið síðan pensil til að smyrja ostinn/deigið.
Bakið ostinn í ofni við 200 gráður í 20 til 25 mínútur, eða þar til deigið er orðið fallega gyllt/brúnt.
Takið út úr ofninum og látið bíða í 15 til 20 mínútur – en mikilvægt er að osturinn fái aðeins að bíða áður en skorið er í hann.
Gott að bera fram með vínberjum, baguette eða ristuðu súrdeigsbrauði.
Njótið!
Aðferð II
Takið smjördeigið og leggið á borð. Það gæti þurft að fletja deigið aðeins út með kökukefli.
Smyrjið vel af apríkósusultu ofan á ostinn og leggið hann svo á hvolf ofan á deigið.
Pakkið ostinum síðan vel inn í deigið.
Leggið þá ostinn á bökunarplötu klædda með smjörpappír eða setjið hann í lítið eldfast mót. Gætið þess að snúa þeirri hlið niður þar sem brotið er upp á deigið.
Ef afgangur er af smjördeiginu er stórsniðugt að nota piparkökumót og búa til stjörnur eða annað slíkt og leggja ofan á deigið til skrauts.
Hrærið eggið í skál með gaffli og notið síðan pensil til að smyrja ostinn/deigið.
Bakið ostinn í ofni við 200 gráður í 20 til 25 mínútur, eða þar til deigið er orðið fallega gyllt/brúnt.
Takið út úr ofninum og látið bíða í 15 til 20 mínútur – en mikilvægt er að osturinn fái aðeins að bíða áður en skorið er í hann.
Gott að bera fram með vínberjum, baguette eða ristuðu súrdeigsbrauði.
Njótið!
Aðferð III
Takið smjördeigið og leggið á borð. Það gæti þurft að fletja deigið aðeins út með kökukefli.
Dreifið hunangi og hnetum yfir ostinn og leggið hann svo á hvolf ofan á deigið.
Pakkið ostinum síðan vel inn í deigið.
Leggið þá ostinn á bökunarplötu klædda með smjörpappír eða setjið hann í lítið eldfast mót. Gætið þess að snúa þeirri hlið niður þar sem brotið er upp á deigið.
Ef afgangur er af smjördeiginu er stórsniðugt að nota piparkökumót og búa til stjörnur eða annað slíkt og leggja ofan á deigið til skrauts.
Hrærið eggið í skál með gaffli og notið síðan pensil til að smyrja ostinn/deigið.
Bakið ostinn í ofni við 200 gráður í 20 til 25 mínútur, eða þar til deigið er orðið fallega gyllt/brúnt.
Takið út úr ofninum og látið bíða í 15 til 20 mínútur – en mikilvægt er að osturinn fái aðeins að bíða áður en skorið er í hann.
Gott að bera fram með vínberjum, baguette eða ristuðu súrdeigsbrauði.
Njótið!
Hér í myndbandinu má sjá betur hvernig þetta er gert
Jóna Péturs – kokteillinn@gmail.com