Þessar kúrbítsflögur eru tilvaldar sem forréttur, fullkomnar sem helgarsnakk og æðislegar í partýið.
Best af öllu er samt hvað þær eru hollar og góðar þegar þú vilt snarla eitthvað án samviskubits.
Mjög einfalt að gera
Það sem þú þarft
1 meðalstóran kúrbít
3 msk hveiti
2 msk sætt paprikuduft
2 egg (hrærð)
8 msk brauðmylsnu
12 msk niðurrifinn Parmesan ost
salt og svartan pipar eftir smekk
Aðferð
Skerðu kúrbítinn í þunnar sneiðar.
Hrærðu tvö egg saman í skál
Settu hveiti og paprikuduft í aðra skál og blandaðu vel saman.
Í þriðju skálina seturðu Parmesan ostinn, brauðmylsnuna, saltið og svarta piparinn og blandarvel saman
Dýfðu kúrbítssneiðunum í hveitiblönduna og passaðu að sneiðarnar þekist alveg, og hristu síðan aðeins af.
Því næst setur þú sneiðarnar í hrærðu eggin, snýrð þeim á báðar hliðar og setur þær síðan í parmesan- og brauðmylsnuskálina.
Leggðu svo þaktar kúrbítssneiðarnar á bökunarplötu og hafðu bökunarpappír undir.
Síðan er þetta bakað í ofni við 180 gráður – eða þar til kúrbíturinn er gullinbrúnn.
Þegar flögurnar koma úr ofninum er gott að leyfa þeim aðeins að kólna áður en þú berð þær fram.
Í myndbandinu hér að neðan má svo sjá hvernig þetta er gert.