Eins og þið hafið kannski áttað ykkur á þá erum við afar veik fyrir Nutella og höfum verið með nokkrar uppskriftir þar sem Nutella kemur við sögu.
Fengum vatn í munninn
Einmitt þess vegna fengum við vatn í munninn þegar við sáum nýjustu uppskriftina hjá uppáhalds íslenska matarbloggaranum okkar, henni Svövu á Ljúfmeti og lekkerheit. Við fengum því hennar leyfi til að deila þessari dásemd með lesendum okkar.
Og við sjáum alveg fyrir okkur að þessar verði frábærar með hinum kökunum í jólaundirbúningnum.
Nutellakökur
Það sem þarf
- 2 eggjahvítur
- 2,5 dl flórsykur
- 0,5 dl hveiti
- 0,5 dl kakó
- 1 tsk vanillusykur
- 0,75 dl nutella
Aðferð
Hrærið eggjahvítur og flórsykur saman í um 1 mínútu.
Hrærið kakó, hveiti, vanillusykri og nutella saman við.
Notið tvær skeiðar til að gera 12 deigskammta á smjörpappírsklædda ofnplötu.
Bakið við 175° í um 12 mínútur.
Látið kökurnar kólna á ofnplötunni.
Njótið!
Hér er önnur girnileg Nutella-uppskrift.
Og Hér er síðan hennar Svövu.