Já það er vel hægt að búa til ljúffengar og bragðgóðar kökur á 5 mínútum. Og þessi uppskrift kemst ansi nálægt því að vera fullkomin í það verkefni.
Hún er ekki of þurr og alls ekki seig – og svo er hún líka passlega sæt.
Það er alveg frábært að henda í eina svona þegar súkkulaðiþörfin lætur á sér kræla eftir kvöldmatinn.
Það sem þarf
4 matskeiðar hveiti
¼ teskeið lyftiduft
4 matskeiðar sykur
1 egg
3 matskeiðar kakó
3 matskeiðar Nutella
3 matskeiðar mjólk
3 matskeiðar ólífuolía eða önnur góð olía
Aðferð
Blandið öllu saman í stórri könnu.
Hrærið vel saman með gaffli þar til deigið er orðið mjúkt.
Setjið í örbylgjuofn á hæstu stilling í 1 ½ til 3 mínútur (fer algjörlega eftir styrkstillingum á örbylgjuofninum).
Takið út og setjið rjóma og jafnvel súkkulaðisósu yfir.
Njótið!