Þegar við eldumst breytist húð okkar og þá um leið þær áherslur sem við þurfum að nota við förðunina. Ekki dugir lengur að nota sömu vörur og sömu aðferðir og þegar við vorum yngri.
Hér eru sjö ráð og trix, fyrir eldri húð, sem gott er að hafa á bak við eyrað við förðunina
1. Rakakrem
Berðu rakakrem á andlitið áður en þú setur farða á þig. Húðin þornar með aldrinum og þarf á næringu að halda.
Ef þú setur farðann beint á húðina sýgur hún upp rakann úr farðanum og um leið verða fínar línur og blettir sýnilegri og magnast upp.
2. Gullinn farði
Ef þú ert komin yfir fimmtug veldu þá gullinn farða. Gullnir tónar draga úr roða og gráma og gefa húðinni yngra og frísklegra útlit.
3. Hyljari
Ekki nota farðann þinn til að hylja svæði sem þér finnst þurfa á því að halda, eins og undir augu og á bletti og slíkt. Notaðu hyljara til að hylja slíka bletti.
Of mikill farði ýtir undir hrukkur og fínar línar – mundu að minna er meira.
4. Varlega með púður
Ekki nota of mikið púður á andlitið og best væri jafnvel að sleppa öllu púðri nema þú sért með mjög feita húð. Púðrið sest í hrukkur og fínar línur og magnar þær upp.
5. Öðruvísi augnskuggi
Prófaðu að nota augnskugga sem er allt öðruvísi á litinn en augun þín. Þetta mun draga fram augnlitinn. Ef þú ert með blá augu notaðu brúnan, kopar, brons eða terracotta tóna. Og ef þú ert með brún augu prófaðu að nota bláan, fjólubláan og grænan.
6. Augnblýantur
Settu dökkan augnblýant innan á neðri augnhvarminn, alveg upp hárin. Þetta opnar augun og gefur um leið frísklegt og vakandi útlit.
7. Varirnar
Settu örlítið vaselín eða vel glansandi gloss á miðja neðri vörina. Þetta gefur vörunum meiri fyllingu og um leið unglegra útlit. Reyndu líka að forðast dökka varaliti – en þeir láta varirnar virðast minni og ýkja um leið fínar línur kringum munninn.