Hjá mörgum er það hluti af morgunrútínunni að byrja daginn á volgu sítrónuvatni – enda talið gera líkamanum gott.
Hér er þó ekki um neina nýja aðferð að ræða því sítrónusafi í vatni hefur verið vel þekkt aðferð í hundruðir ára. Enda er sítrónuvatnið talið allra meina bót.
Eins og að skúra líkamann að innan
Sítrónuvatn inniheldur mikið af efnum sem hjálpa til við að hreinsa eiturefni úr líkamanum. Sumir vilja meina að þetta sé eins og skúra líkamann að innan. Í sítrónum er mikið af góðum efnum sem örva meltinguna, styrkja ónæmiskerfið og drepa bakteríur og veirur. Þá er sítrónuvatnið talið geta stuðlað að betri svefni, unnið gegn brjóstsviða og haft góð áhrif á húðina. En er hægt að gera þessa morgunrútínu enn betri og áhrifaríkari?
Eitt öflugasta andoxunarefni svo vitað sé
Til að gera sítrónuvatnið enn áhrifaríkara er tilvalið að blanda túrmeriki við það en það er einmitt einföld leið til að bæta túmeriki inn í daglega rútínu. Jurtin túrmerik hefur verið notuð sem krydd, lækningajurt og litarefni í Suðaustur-Asíu frá því um 600 fyrir Krist. Hér er því um aðra ævaforna aðferð að ræða sem á að virka vel.
Jurtin hefur verið notuð um aldir gegn bólgum í líkamanum, liðagigt, magavandamálum, ýmsu ofnæmi, lifrarvandamálum og brjóstsviða. Þetta er eitt öflugasta andoxunarefni svo vitað sé og eykur það blóðflæði og þanþol æða. Þannig kemur það jafnvægi á blóðþrýstinginn og bætir um leið hjarta- og æðakerfið. Þá er það talið koma í veg fyrir skemmdir á innri líffærum, eins og t.d. heila, og hefur túrmerik verið viðfangsefni ótal vísindarannsókna undanfarin ár í tengslum við Alzheimer og Parkinson. Þá er einnig talið að jurtin geti haft áhrif á krabbameinsvöxt.
Verið notað í indverska matargerð í þúsundir ára
Túrmerik hefur verið notað í indverska matargerð í þúsundir ára og er talið að það geti verið ástæðan fyrir að enn í dag er Alzheimer ekki eins algengt á Indlandi og annars staðar í heiminum. Hér áður var því haldið fram að taugafrumur gætu ekki skipt sér og margfaldast eftir barnæsku. Í dag er hins vegar vitað að það gerist svo sannarlega. Því heilinn getur framleitt nýjar frumur þrátt fyrir hærri aldur og skiptir þá engu máli hversu gömul við verðum. Engu að síður þá gerist þetta ekki alveg sjálfkrafa og er eitt og annað hægt að gera til að hjálpa heilanum til þess.
Þannig útbýrð þú þennan ofurdrykk:
Hitaðu vatn.
Kreistu safa úr 1/2 sítrónu og settu í bolla.
Bættu 1/4 úr teskeið af túrmerik út í bollann.
Helltu heitu vatninu út í bollann.
Hrærðu vel saman – þar sem túrmerikið sest á botninn þarf líka að hræra á meðan drukkið er.
Gættu þess að drekka vatnið á meðan það er heitt/volgt.
Fyrir þá sem gæti þótt bragðið af kryddinu vont og vilja bragðbæta drykkinn gæti hjálpað að bæta 1/8 úr teskeið af hunangi út í.