Nú er komin hin fullkomna afsökun fyrir konur til að fara út með vinkonum sínum. Bara svona ef þig vantaði ástæðu!
Finnst þér gaman að fara út með stelpunum? Gerðu það þá oftar því ávinningurinn af því er víst heilmikill.
Vísindin sanna það
Samkvæmt nýlegri rannsókn ættu konur að fara út með vinkonum sínum tvisvar í viku í þeim tilgangi að bæta eigin heilsu. Því það gerir þig bæði hamingjusamari og hraustari.
Rannsóknin sem framkvæmd var við Háskólann í Oxford sýndi fram á þau nauðsynlegu skref sem konur þurfa að taka til að öðlast hamingju í öllum þáttum lífs síns. En rannsóknin leiddi í ljós að grunnurinn að því væri sá að konur upplifðu það að þær væru frjálsar til þess að fara út með vinkonum sínum að minnsta kosti tvisvar í viku.
Betri heilsa – líkamleg og andleg
Samkvæmt Robin Dunbar sálfræðingi sem stóð fyrir rannsókninni þá geta konur bætt heilsu sína til muna með því að hitta vinkonu eða vinkonur sínar tvisvar í viku og gera eitthvað saman. Það þarf ekki að vera flóknara en að spjalla, slúðra og fá sér kaffibolla eða vínglas. Ávinningurinn af þessari samveru felur einnig í sér sterkara ónæmiskerfi, minni kvíða, hraðari bati eftir veikindi og aukið örlæti sem lætur konum um leið líða betur.
Staðreyndin er víst sú að flestar konur fara ekki oft út með vinkonum sínum. Rannsóknir sýna fram á að tvær af hverjum fimm konum fara út með vinkonum sínum einu sinni í viku og sjaldnar ef þær eru með fjölskyldu.
Grín, gleði og hlátur
Rannsóknin sýndi einnig fram á að konur ná bestu tengslum með því að grínast, koma með fyndnar athugasemdir og tala um hluti sem kemur þeim til að hlæja. En hláturinn er auðvitað frábært meðal eins og flestir vita. Þá skiptir stærð hópsins líka máli en ákjósanlegasti fjöldi er að hámarki fjórar konur – ef konurnar eru fimm eða fleiri dregur úr líkum á nauðsynlegu endorfíni sem er stór hluti af þessu og veitir almenna vellíðan.
Vísindin sýna að konur hafi meiri þörf fyrir þessi vinkonutengsl en karlar. Og með aldrinum verður það víst enn mikilvægara að halda í þessi tengsl.
Hversu langt er síðan þú fórst eitthvað með vinkonu þinni? Og hversu oft gerirðu eitthvað með vinkonum þínum?