Hrærð egg eru algjörlega ómissandi í dögurðinn, eða „brunch“ eins og við gjarnan köllum þessa máltíð sem er blanda af morgunmat og hádegismat.
En hrærðu eggin þurfa ekki alltaf að vera eins því þau má útbúa á fleiri en einn veg.
Hrærð egg á þrjá vegu
Það má til dæmis gera hrærð á enskan máta, franskan eða á amerískan máta.
Í myndbandinu hér að neðan sýnir Jamie Oliver okkur hvernig hann gerir eggin sín á þessa þrjá vegu.
Það sem þarf
2 egg fyrir einn (Jamie gerir egg fyrir tvo og notar því 4 egg)
Salt
Smjör
Og Jamie notar enga mjólk en bendir á að nota megi bæði mjólk og rjóma en það sé hins vegar engin þörf á því.
Hér sýnir Jamie okkur fyrst hvernig hann gerir ensku eggin, síðan þau frönsku og að lokum þau amerísku. Hann segir þessar ólíku aðferðir ekki aðeins breyta áferð eggjanna heldur einnig bragði þeirra.
Þá er bara að prófa sig áfram og breyta til.