Ég er svo veik fyrir frönskum súkkulaðikökum að það hálfa væri nóg – og þessi hér er klárlega ein af þeim allra bestu sem ég geri.
En þessa köku hef ég bakað nokkrum sinnum á ári í 14 ár og er hvergi nærri hætt.
Konfektmoli
Þetta er algjör konfektmoli enda slær hún alltaf í gegn. Og ég býð ósjaldan upp á hana sem eftirrétt í matarboðum.
Uppskriftina fékk ég upphaflega hjá góðri vinkonu en hún hafði fengið hana hjá móður sinni. Með tímanum hef ég breytt uppskriftinni örlítið. Ég get lofað að þið verðið ekki svikin af henni þessari því hún er algjört æði.
Það sem þarf
Kakan
200 g smjör
300 g suðusúkkulaði
4 egg
2 dl sykur
1 dl púðursykur
1 dl hveiti
Kremið
60 g smjör
150 g suðusúkkulaði
2 msk síróp
Aðferð
Kakan
Þeytið egg og sykur saman.
Bræðið súkkulaðið og smjörið saman yfir vatnsbaði.
Blandið því síðan varlega saman við eggin og sykurinn.
Bætið þá hveitinu saman við og hrærið varlega.
Smyrjið kringlótt smelluform og setjið deigið í formið, ég set alltaf bökunarpappír í botninn svo að kakan festist ekki við.
Bakið við 180°C í 30-35 mínútur.
Kremið
150 g af suðusúkkulaði brætt saman við 60 g af smjöri og 2 msk af sírópi síðan bætt við.
Látið standa í smástund.
Hellið síðan yfir kökuna þegar hún er farin að kólna.
Það er rosalega gott, og eiginlega ómissandi, að bera léttþeyttan rjóma fram með henni.
Njótið!
jona@kokteill.is