Það er svo gott að eiga salat í ísskápnum til að grípa í þegar hungrið sverfur að. Og auðvitað ekki verra ef það er í hollari kantinum svo enginn þurfi að fá samviskubit.
Hér er fljótleg og einföld uppskrift, frá henni Svövu á Ljúfmeti og lekkerheit, að hollu og góðu túnfisksalati.
Frábært til að taka með í sumarbústaðinn og útileguna – eða til að njóta heima.
Það sem þarf
- 1 dós túnfiskur
- 200 g kotasæla
- 1/2 rauðlaukur, hakkaður
- 1 msk kapers
- 2 tsk dijon sinnep
- 2 soðin egg, hökkuð
- salt og pipar
Blandið öllu saman.
Og njótið með hrökkbrauði, brauði og/eða kexi.