Uppskriftin að þessum gómsæta tælenska rétti er frá ameríska veitingastaðnum California Pizza Kitchen.
Þetta er réttur sem slær í gegn hjá allri fjölskyldunni og klárlega eitthvað sem þú munt gera aftur og aftur.
Það var hún Svava á Ljúfmeti og lekkerheit sem skellti í þennan á dögunum – en hann sló algjörlega í gegn á hennar heimili.
Það sem þarf
- 450 g spagettí
- 3 msk sesam olía
- 1 bolli gulrætur, skornar í strimla
- 2 bollar kínakál, skorið í strimla
- 2 bollar eldaðar kjúklingabringur, skornar í bita
- 8 vorlaukar
- 5 hvítlauksrif, fínhökkuð
- 1 msk rifið engifer
- 1/4 bolli hunang
- 1/4 bolli hnetusmjör (creamy)
- 1/4 bolli sojasósa
- 3 msk hrísgrjónaedik
- 1 – 1,5 msk sriracha hot chilli sósa
Aðferð
Setjið vatn í rúmgóðan pott og hitið að suðu. Bætið 1-2 msk af salti út í vatnið.
Bætið spagettí í pottinn og sjóðið samkvæmt leiðbeiningum á pakka.
Hellið vatninu frá og hrærið 2 msk af sesamolíu saman við spagettíið.
Þurrkið pottinn og setjið 1 msk af sesamolíu í hann.
Setjið vorlauk (takið fyrst smá af honum frá til að setja yfir réttinn sem skraut), gulrætur, kínakál, kjúkling, hvítlauk og engifer í pottinn.
Steikið í 1-2 mínútur og bætið þá hunangi, hnetusmjöri, sojasósu, ediki og Sriracha sósu í pottinn.
Hærið allt vel saman og bætið að lokum spagettíinu í pottinn. Blandið þessu öllu vel saman.
Skreytið með vorlauk og berið fram.
Njótið!