Frönsk súkkulaðikaka er í algjöru uppáhaldi hjá mér og líklega sú kaka sem ég baka oftast.
Hvernig er annað hægt en að finnast svona súkkulaðikökur góðar? Þær eru stútfullar af dásamlegu dökku súkkulaði!
Einstaklega einfalt
Hér er alveg einstaklega einföld uppskrift með aðeins tveimur hráefnum. Þetta er ekki stór kaka, en maður þarf heldur ekki mikið af svona súkkulaðiköku til að metta súkkulaðipúkann.
Þessa uppskrift ættu allir að ráða við.
Það eina sem þarf
3 egg
165 gr dökkt súkkulaði
Aðferð
Hitið ofninn að 170 gráðum.
Takið eggin og aðskiljið og setjið í sitt hvora skálina.
Geymið eggjahvíturnar í ísskáp þar til þær eru notaðar.
Brjótið súkkulaðið í bita, setjið í skál og bræðið yfir vatnsbaði.
Stífþeytið eggjahvíturnar á meðan súkkulaðið bráðnar.
Leyfið súkkulaðinu síðan aðeins að kólna.
Bætið þá eggjarauðunum út í súkkulaðið og blandið vel saman.
Blandið ca 1/3 af stífþeyttu eggjahvítunum saman við súkkulaðiblönduna og hrærið varlega saman.
Setjið síðan restina af eggjahvítunum út í í tvennu lagi og hrærið aftur vel og varlega saman.
Takið 15 cm form og klæðið með bökunarpappír.
Hellið deiginu í formið og skellið síðan forminu aðeins niður í borðið til að losna við loftbólurnar.
Bakið í ofninum í 30 til 40 mínútur.
Takið út úr ofninum og látið kólna.
Þegar formið hefur kólnað takið þá kökuna í bökunarpappírnum úr forminu og leggið á grind og látið kólna. Fjarlægið pappírinn.
Stráið örlitlum flórsykri yfir (ef vill) áður en kakan er borin fram.
Njótið!
Sjáðu hér í myndbandinu hvað þetta er einfalt
Jóna Péturs – kokteillinn@gmail.com