Þetta er alveg einstaklega einfalt, gott og fljótlegt að útbúa. Og hver segir að maður geti bara bakað vöfflur í vöfflujárninu!
Hér erum við með súper góða létta máltíð eða snarl eftir skóla… eða bara með sjónvarpinu á föstudagskvöldi.
Svo sannarlega hægt að mæla með þessu ef þig langar í eitthvað mexíkóskt.
Það sem þarf
1 msk ólífuolía
1 sæt paprika (þessi langa og mjóa), skorin fínt
1 jalapeño, niðurskorið og fræhreinsað
4 Old El Paso tortillakökur (miðstærð)
1 til 1 ½ bolli niðurrifinn ostur (t.d. Cheddar, kryddaður Havarti eða sterkur Gouda)
2 tsk Old El Paso taco-krydd
sýrður rjómi
Old El Paso salsa sósa
kóríander
Aðferð
Hitið olíuna á meðalstórri pönnu og setjið papriku og jalapeño út á pönnuna. Steikið í 1 til 2 mínútur, þar til piparinn mýkist og saltið svo örlítið að lokum.
Hitið vöfflujárnið og skerið tortillakökurnar til, ef þess þarf, svo þær passi í járnið.
Leggið síðan eina tortillaköku í vöfflujárnið og dreifið smá af ostinum yfir – og síðan um helming af papriku/ jalapeño blöndunni.
Dreifið taco-kryddi yfir og setjið síðan vel af osti þar yfir.
Leggið að lokum aðra tortillaköku yfir þetta allt og lokið vöfflujárninu.
Bakið þar til osturinn er vel bráðinn og farinn að krauma.
Takið þá úr járninu og skerið í fjóra bita.
Endurtakið síðan með hinar tvær kökurnar sem eftir eru.
Berið fram og njótið með sýrðum rjóma, Old El Paso salsasósu og kóríander.
jona@kokteill.is
Uppskrift – tablespoon.com