Hinn heimsfrægi breski sönghópur, The King’s Singers, mun halda tónleika í Eldborgarsal Hörpu miðvikudaginn 16. september næstkomandi.
King’s Singers eru margverðlaunaðir og hafa t.d. unnið til Grammy verðlauna í tvígang, árið 2009 fyrir plötuna Simple Gifts og árið 2012 fyrir plötuna Light and Gold.
Sönghópurinn sem var stofnaður árið 1968 heldur á hverju ári vel yfir hundrað tónleika víðs vegar um heiminn. Þá eru upptökur á geisladiskum mikilvægur þáttur hjá hópnum.
Efnisval King’s Singers er gríðarlega fjölbreytt og á 50 ára ferli hefur hann gefið út yfir 150 diska með yfir 200 lögum.
Fjölmiðlar hafa ítrekað farið fögrum orðum um sönghópinn og The Times í London kallar hann „Söngsextett í hæsta gæðaflokki“.
Allir þeir sem hafa gaman af sönghópum, kórum, „a capella“ söng og fallegum söng almennt ættu ekki að láta þennan heimsfræga sönghóp fram hjá sér fara.
Enn er hægt að nálgast miða í miðasölu Hörpu.