Þótt þú kunnir ekkert að baka þá geturðu svo sannarlega töfrað þessa dásemd fram – enda þarf ekki að baka þessa köku.
Nostalgía
Það er einhver nostalgía tengd þessari kexköku og margir muna kannski eftir einhverju svipuðu frá því þeir voru krakkar.
Alla vega þá er þessi uppskrift alveg einstaklega girnileg, góð og einföld. En það er auðvitað alltaf mikill kostur þegar hlutirnir eru ekki of flóknir.
Það sem þarf
800 gr digestive kex
1 bolla ristaðar hnetur, t.d. valhnetur, pekanhnetur eða heslihnetur
Í súkkulaðisírópið
1 bolla sykur
½ bolla ósætt kakó
1 bolla vatn (240 ml)
150 gr smjör
1 tsk vanilludropar
Í kremið
½ bolla rjóma
120 gr suðusúkkulaði, niðurskorið
Aðferð
Brjótið kexið í litla bita og setjið í stóra skál.
Ristið hneturnar á pönnu við meðalhita í um 5 mínútur.
Bætið hnetunum í skálina með kexinu.
Undirbúið þá súkkulaðisírópið með því að setja sykur og kakó í pott og blandið vel saman.
Hrærið vatninu saman við blönduna.
Bætið smjörinu við og setjið pottinn á hellu og látið sjóða saman við meðalhita í um 7 til 8 mínútur. Hrærið stöðugt í á meðan.
Takið af hitanum og látið kólna í 10 til 15 mínútur.
Bætið vanilludropunum við blönduna.
Hellið þá súkkulaðisírópinu yfir kexið og hneturnar. Hrærið vel í til að þekja allt með súkkulaðinu.
Setjið blönduna í hringlaga form (23 cm), og gott er að setja bökunarpappír í botninn.
Þrýstið þessu vel í botninn og sléttið úr blöndunni.
Hyljið formið með loki eða plasti og setjið í kæli í hálfan til einn tíma.
Undirbúið þá kremið með því að setja rjóma í pott og hitið að suðu.
Setjið 120 gr af súkkulaði í skál og hellið síðan rjómanum yfir og látið súkkulaðið bráðna. Hrærið vel í til að blanda þessu saman.
Takið kökuna úr kælinum og hellið súkkulaðikreminu yfir hana og smyrjið vel yfir.
Lokið aftur og setjið í kæli í að minnsta kosti 3 til 4 tíma eða yfir nótt.
Takið kökuna varlega úr forminu.
Skreyta má kökuna með því að dreifa hnetum yfir áður en hún er borin fram.
Njótið!
Sjáðu hér hvernig þetta er gert