Sumir finna oft fyrir þeirri þörf að hreinsa líkamann og minnka við sig í mat og drykk.
Það hentar samt ekki öllum að fara í stranga afeitrun, eins og t.d. á safakúra og annað slíkt. En það er ekki þar með sagt að ekki sé hægt að hjálpa líkamanum án þess að borða ekki neitt.
Hér eru því góðar fréttir fyrir þá sem ekki vilja fara alla leið og sleppa því alveg að borða.
9 leiðir sem geta hjálpað til við að hreinsa líkamann
1. Byrjaðu daginn á sítrónuvatni
Kreistu hálfa sítrónu út í bolla af volgu vatni. Ekki hafa vatnið of heitt eða of kalt, stofuhiti er rétta hitastigið. Eftir að þú hefur drukkið vatnið bíddu þá í 15 til 30 mínútur þar til þú borðar morgunmat.
2. Slepptu pakkavörunum
Forðastu unnar matvörur, sem sagt allt sem kemur í plasti, poka, dós eða krukku. Í þessu öllu eru aukaefni sem þú vilt forðast til að hreinsa líkamann.
3. Hrein fæða
Fáðu þér ávexti, grænmeti, heilkorn, hnetur, fræ og jurtir.
4. Notaðu vel af kryddjurtum
Borðaðu nóg af kryddi eins og engifer, kanil, kúmeni, túrmeriki og cayenne-pipar. En þessar kryddjurtir eru mjög hreinsandi.
5. Fáðu þér fennelfræ
Þau eru stútfull af andoxunarefnum. Þegar fræin eru tuggin losnar um mjög svo gagnlega olíu sem bætir meltinguna og kemur jafnvægi á blóðsykurinn.
6. Velviljaðir gerlar
Fáðu þér probiotics gerla – þetta eru svo kallaðir velviljaðir gerlar sem hafa góð áhrif á meltingarveginn. Ef þú færð þetta í duftformi geturðu bætt því út í safa eða jógúrt.
7. Borðaðu sjaldnar
Fáðu þér þrjár máltíðir yfir daginn og forðastu að snarla á milli mála. Með þessu gefurðu líkamanum meiri tíma til að melta og vinna úr fæðunni.
8. Dökkt súkkulaði
Gæddu þér á dökku súkkulaði og reyndu að hafa hátt hlutfall af kakó, t.d. 70 eða 80 prósent.
9. Kamillute
Endaðu daginn á því að fá þér kamillute. Það hjálpar líkamanum að vinna úr og brjóta niður síðustu máltíð dagins – og bætir líka um leið svefninn.