Þessi girnilegi smoothie er nauðsynlegur þeim sem eiga við það algenga vandamál að stríða að þjást af uppþembu.
En innihald drykksins hjálpar meltingunni og kemur í veg fyrir uppþembdan maga.
Öll innihaldsefnin hjálpa
Gríska jógúrtin gefur gott magn kalks og próteins. Bláberin auka brennsluna og brenna fitu og ananasinn inniheldur ensím sem auðveldar meltinguna og kemur í veg fyrir uppþembu. Og grænkálið er auðvitað fullt af trefjum sem kemur í veg fyrir hægðatregðu.
Mörgum finnst grænkál ekki bragðgott en það góða við þennan drykk er að þegar kálið hefur blandast vel saman við hin innihaldsefnin finnst ekkert bragð af því lengur.
Það sem þarf
80 ml (tæplega ½ bolla) af grískri jógúrt
1 msk möndlusmjör
½ bolla frosin bláber
½ bolla frosinn ananas
1 bolla grænkál
¾ bolla vatn
Aðferð
Setjið allt saman í blandara og þeytið þar til drykkurinn er orðinn mjúkur og áferðarfallegur.
Hellið í glas og njótið strax!