Hefur þú bakað blómkál? Heilan blómkálshaus?
Þessi uppskrift er dásamleg, ég hef prófað hana sjálf og varð ekki fyrir vonbrigðum.
Þetta þarf í uppskriftina
1 stóran blómkálshaus
1 msk af ólífuolíu
1 og ½ bolli af grísk jógúrt – ég notaði kotasælu
1 límóna, kreista safann og kjötið innan úr
2 msk af chilly dufti
1 msk af cumin – ég sleppti því
1 msk hvítlauksduft
1 tsk af karrý
2 tsk af góðu salti
1 tsk svartur pipar
Aðferð
- Hitaðu ofninn í 180 – 200°.
- Hreinsaðu blómkálshausinn vel, taktu allt grænt af honum og skerðu stofninn í miðjunni vel niður.
- Taktu stóra skál og blandaðu öllum hráefnunum saman.
- Skelltu nú blómkálshausnum í blönduna í skálinni, settu hann ofan í á haus og notaðu bara hendurnar til að maka á hann allri blöndunni.
- Settu blómkálshausinn í eldfast mót og settu í heitan ofninn í 30 til 40 mínútur.
Marineringin bakast fallega utan um blómkálshausinn.
Taktu hann út þegar hann er tilbúinn og leyfðu að standa í 10 mínútur til að kólna aðeins áður en það er skorið í hann.
Berðu fram með grænu salati og kreistu yfir lime og helltu einnig dassi af olíu yfir.
Þetta er dásamlega gott.
Njótið!
Anna Birgis