Hér er uppskrift að smá góðgæti fyrir alla þá sem eru hrifnir af avókadó. En það er alveg með ólíkindum hvað má nota þennan mjúka og bragðgóða ávöxt í margt.
Þótt mörgum finnist avókadó frekar vera grænmeti en ávöxtur þá er það ekki raunin – avókadó er raunverulega flokkað sem ber. Og eins og með önnur ber þá passar avókadó með svo ótalmörgu, hvort sem það er t.d. salat eða kaka.
Hér er holl og góð uppskrift að mjúkum dásamlegum kúlum sem gott er að narta í.
Það sem þarf
1 avókadó
¾ bolli dökkt súkkulaði
½ tsk vanilludropar
örlítið af kanil
kakóduft til að húða kúlurnar
Aðferð
Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði.
Setjið avókadó í skál og kremjið/maukið þar til orðið mjúkt.
Hellið bráðna súkkulaðinu út í skálina og blandið saman við avókadó.
Bætið þá vanilludropum og kanil saman við.
Þegar allt hefur blandast vel saman látið þá blönduna inn í ísskáp í svona hálftíma.
Takið þá út og mótið kúlur, blandan ætti að vera ca 10 til 12 kúlur.
Veltið hverri kúlu upp úr kakódufti að lokum.
Og njótið!
Jóna Péturs – kokteillinn@gmail.com
Uppskrift frá Renewing All Things