Þeir sem eru alltaf of seinir eru víst bæði bjartsýnni og meira skapandi

kona afslöppuð of sein stressÉg er ein af þeim sem á það til að vera alltof oft of sein – eða alla vega svona á síðustu stundu. Þetta er eitthvað sem hefur fylgt mér alla ævi og virðist vera ansi erfitt að hrista það af sér.

Og þótt ég hafi aðeins skánað í gegnum tíðina, þá virðist þetta samt vera eitthvað sem ég á voðalega erfitt með að eiga við.

Alveg hundfúlt

En það er ekki eins og ég ætli mér að vera sein. Auðvitað ekki!

Ég er svo virkilega og innilega að hamast við að vera á réttum tíma – eða svona oftast alla vega. Að sjálfsögðu finnst mér ekkert gaman að láta aðra bíða eftir mér. Mér finnst það alveg hundfúlt! En það virðist samt ansi oft enda þannig að einhver þarf að bíða eftir mér. Nú eða þá að ég kem hlaupandi alveg á síðustu stundu.

Ég hef oft velt því fyrir mér hvað sé eiginlega málið og af hverju ég sé svona oft of sein og á síðustu stundu. Er það af því ég er svo mikill trassi? Nei, ég held ekki!

Ber ég kannski svona litla virðingu fyrir tíma annarra? Nei, alls ekki.

Eða er ég bara svona svakalega óskipulögð? Nei, það passar alls ekki.

Svo hvað er þá málið?

Skýringin er fundin – þetta segja vísindin

Þar sem mér þykir þetta miklu leiðinlegra en flestir halda þá gladdist ég mjög að sjá niðurstöður rannsóknar sem útskýrir hvers vegna sumir eru alltaf of seinir. Ó JÁ! Það er sko skýring á þessu – og ég verð nú bara að segja að ég er alveg sátt við hana.

Samkvæmt rannsókninni þá er ég víst bara svona rosalega bjartsýn. Ég læt sem sagt stjórnast af bjartsýninni og hún setur tímaskynið alveg úr skorðum. Dásamleg útskýring, ekki satt.

En til að útskýra þetta nánar svo allir þeir sem hafa sýnt mér ótrúlega biðlund í mörg, mörg ár, skilji um hvað þetta snýst. Það er víst þannig að þessir bjartsýnu einstaklingar sem alltaf eru seinir trúa því svo innilega að þeir nái að gera miklu meira á ákveðnum tíma en raunin er.

Hér ríkir sem sagt óeðlileg bjartsýni. Og þetta gerir þessa einstaklinga um leið óraunsæja og lélega í því að áætla og reikna út tíma.

Vissulega getur verið ansi slæmt að vera óraunsær en engu að síður þá vil ég trúa því að kostirnir séu fleiri en gallarnir við það að vera fram úr hófi bjartsýnn. Því sannað þykir að með bjartsýni aukist heilsufarslegir þættir til hins betra. Bjartsýni er talin draga úr stressi, minnka líkur á hjartasjúkdómum og styrkja ónæmiskerfið.

Og ekki má svo gleyma því að allar rannsóknir sýna að bjartsýni og hamingja geta lengt lífið. Þá skiptir hún líka miklu máli til þess að ná árangri í lífinu og til að auka afköst.

Hluti af persónuleikanum

Þessir seinu einstaklingar eru stundum sagðir vera B-manneskjur, þeir eru afslappaðri,áhyggjulausari og meira skapandi. Með öðrum orðum þá hefur þetta fólk víst ekki jafn miklar áhyggjur af því sem ekki skiptir máli heldur horfir á heildarmyndina og sér framtíðina ætíð fulla af tækifærum.

En skiljanlega fáum við, þessi sem erum alltaf of sein, skammir og gagnrýni. Og alltaf þykir manni það jafn leitt að vera of seinn. Ég get lofað því að við þessi seinu erum ekki löt eða ótillitssöm og við viljum engan móðga. Þetta er aðeins hluti af persónuleika okkar – og auðvitað er það leiðinlegt að það þurfi að bitna á öðrum.

En við höldum samt áfram að reyna.

 

 

 

 

Jóna Ósk Pétursdóttir – kokteillinn@gmail.com

Deildu þessari grein á
  • Nýtt
  • Heilsa og útlit
  • Lífið og lífsstíll
  • Matur og drykkur
  • Menning
  • Myndbönd

Það er gott að kyssa – En veistu hvað kossaflensið getur gert?

Hvað jafnast á við kossaflens og kelerí? Ekkert að mínu mati, þrátt...

Einstaklega einfaldur og fljótlegur eftirréttur

Þegar strákarnir mínir voru litlir bjó ég stundum til eftirrétt handa...

Þessir 9 hlutir eru það besta í lífinu – Og þeir kosta ekki krónu

Öll vitum við að tilvera okkar hér á jörðinni er takmörkuð, en allt...

Þrjár einfaldar hátíðargreiðslur fyrir stutt hár

Þrátt fyrir að hár þitt sé frekar stutt er ekki þar með sagt að...

Þessi safi er alveg hreint frábær við uppþembu og bólgum í líkamanum

Þrátt fyrir að vatnsmelónur séu 92% vatn innihalda þær engu að...

Japönsk vatnsmeðferð sem talin er allra meina bót

Þessi vatnsmeðferð er alveg sáraeinföld, en hún er kennd við Japan...

Frábært trix til að steikja beikon á pönnu – Án alls sóðaskapsins

  Ef þér finnst beikon gott og færð aldrei nóg af því… en...

Bíddu, er hún 65 ára? Og hvert er leyndarmálið?

Leikkonan Dana Delany lítur alveg ótrúlega vel út miðað við aldur....

Þrjár einfaldar hátíðargreiðslur fyrir stutt hár

Þrátt fyrir að hár þitt sé frekar stutt er ekki þar með sagt að...

Japönsk vatnsmeðferð sem talin er allra meina bót

Þessi vatnsmeðferð er alveg sáraeinföld, en hún er kennd við Japan...

Vissir þú að ananas hefur lækningamátt?

Ananas er stútfullur af góðum næringarefnum og þá meinum við...

Þessi greiðsla tekur fimm mínútur – Ótrúlega flott

  Já takk, við erum sko meira en til í þessa flottu greiðslu sem...

Konur hrjóta líka – Þótt þær haldi öðru fram

Konur um og yfir fimmtugt kvarta frekar en karlar á sama aldri yfir...

Afar mikilvægt fyrir allar konur – og þá sérstaklega konur yfir fertugt

Mælt er með því að hver kona skoði sjálf og þreifi brjóst sín í...

Hættulegra að sofa of mikið en of lítið

Það greinilega borgar sig ekki miðað við nýlega rannsókn að snúa...

Höfuðverkur og konur yfir fertugt – Hver er ástæðan fyrir höfuðverknum?

Afar algengt er að konur yfir fertugt þjáist af höfuðverk sem rekja má...

Það er gott að kyssa – En veistu hvað kossaflensið getur gert?

Hvað jafnast á við kossaflens og kelerí? Ekkert að mínu mati, þrátt...

Þessir 9 hlutir eru það besta í lífinu – Og þeir kosta ekki krónu

Öll vitum við að tilvera okkar hér á jörðinni er takmörkuð, en allt...

Bíddu, er hún 65 ára? Og hvert er leyndarmálið?

Leikkonan Dana Delany lítur alveg ótrúlega vel út miðað við aldur....

Eyðir þú oft peningum í óþarfa? – Hér eru ráð við því

Það er ótrúlegt hvað við getum stundum verið dugleg að eyða...

Snilldar ráð til að gera háu hælana þægilegri

Hvaða kona elskar ekki skó og háa hæla? Þrátt fyrir að það geti...

Karlmenn eru svo miklu mýkri en margar konur halda

Alveg eins og karlmenn eiga oft erfitt með að skilja okkur konur þá...

Lætur þú þarfir annarra alltaf ganga fyrir?

Ert þú týpan sem lætur alltaf aðra ganga fyrir en situr svo sjálf á...

Eru fimmtugar konur í dag eins og fertugar hér áður?

Íslenskar konur eiga góða möguleika á því að ná háum aldri og við...

Einstaklega einfaldur og fljótlegur eftirréttur

Þegar strákarnir mínir voru litlir bjó ég stundum til eftirrétt handa...

Þessi safi er alveg hreint frábær við uppþembu og bólgum í líkamanum

Þrátt fyrir að vatnsmelónur séu 92% vatn innihalda þær engu að...

Frábært trix til að steikja beikon á pönnu – Án alls sóðaskapsins

  Ef þér finnst beikon gott og færð aldrei nóg af því… en...

Bakaðar og gómsætar pepperoni pizza kartöflur

Fáir slá hendinni á móti brakandi pepperoni pizzu, eða bakaðri...

Gómsætur bakaður Brie í áramótaveisluna

Bakaðir ostar eru í miklu uppáhaldi hjá mér og geri ég þannig...

Dásamlegt jóla Tiramisu úr smiðju Jamie Oliver

Það er algjörlega ómissandi að fá góðan eftirrétt um jólin. Hvort...

Æðislegir snickersbitar á aðventu

Nú á aðventu er smákökubakstur á fullu á mörgum heimilum. Margir...

Gómsætar jólalegar súkkulaðikökur með Bismark súkkulaði

Þær gerast nú varla mikið jólalegri smákökurnar… hvað þá...

Þetta eru tuttugu rómantískustu bíómyndir allra tíma

Hvað er meira kósý en að kúra uppi í sófa þegar kalt er úti og...

Tíu frábærar bíómyndir sem fá þig til að gleyma lífsins áhyggjum

Þegar veðrið er ekki upp á sitt besta, maður er jafnvel lokaður inni...

Þetta eru eftirminnilegustu kossar allra tíma

Kossar í bíómyndum verða gjarnan eftirminnilegir – og oft eru...

Jólalög og ljúfir tónar á Þorláksmessu í Hörpu – Frítt inn og allir velkomnir

  Margir leggja leið sína í miðbæ Reykjavíkur á Þorláksmessu...

Mahler og Mussorgsky á Óperudögum í Hannesarholti

  Þau Aron Axel Cortes barítónsöngvari og Hrönn Þráinsdóttir...

Skelltu þér á ókeypis tónleika Óperunnar í Hörpu – Notalegt í hádeginu

Íslenska óperan býður upp á í vetur, eins og undanfarna vetur,...

Svona hefurðu aldrei heyrt lagið Jolene áður… frábær A capella flutningur

Dolly Parton er afskaplega hæfileikarík og þá ekki eingöngu sem...

Gætir þú lifað án tónlistar?

Hvernig væri tilveran án tónlistar? Tónlist er stór hluti af menningu...

Langt leidd af Alzheimer en kemur alltaf tilbaka þegar hún syngur

Það er afar sárt fyrir aðstandendur Alzheimers-sjúklinga að horfa upp...

Er eitthvað krúttlegra en þetta? – Gleðipilla dagsins!

Lítil börn og hundar eru auðvitað bara dásemd. Og þetta litla krútt...

Faðir brúðarinnar neitaði að halda ræðu og gerði þetta í staðinn

Faðir brúðarinnar ákvað að halda ekki hefðbundna ræðu í...

Tónlist gerir kraftaverk fyrir Alzheimer-sjúklinga – Sjáðu myndbandið

Þetta fallega spænska myndband sýnir hversu stórkostleg áhrif tónlist...

85 ára afi stelur senunni í brúðkaupi í hlutverki blómastúlku

Þetta myndband bræðir mann alveg. En þessi 85 ára afi stal senunni í...

Þessi litla ódýra jólaauglýsing hefur gjörsamlega brætt netheima

Það á oftar en ekki við að minna er meira og það sannar þessi litla...

Dáleiddu salinn og dómarana með töfrandi hreyfingum – Alveg magnað

Þessi hópur stúlkna frá Líbanon, 31 talsins, eru keppendur í nýjustu...

Stóð uppi sem sigurvegari 89 ára gamall – Aldrei of seint að láta draumana rætast

Við höfum lengi talað fyrir því að maður er aldrei, nei ALDREI, of...