Þetta parmesanbuff er frábær hversdagsmatur – en hversdagsmatur sem gæti skammlaust verið helgarmatur og á borðum í matarboðum.
Hversdagsmatur sem getur ekki annað en vakið lukku. Parmesan osturinn gefur buffunum gott bragð sem nýtur sín einnig vel í sósunni.
Það er eiginlega nokkurs konar nostalgía yfir þessu dásamlega buffi.
Hún Svava á Ljúfmeti og lekkerheit deilir hér með okkur þessari uppskrift.
Það sem þarf
- 700 g nautahakk
- 2 egg
- 100 g fínrifinn parmesan
- um 2 dl vatn
- 2 tsk salt
- svartur og hvítur pipar
Aðferð
Blandið öllu hráefni saman (ágætt að skella öllu í hrærivélina og láta hana taka nokkra snúninga).
Mótið 9 buff og steikið í 4-5 mínútur á hvorri hlið í vel af smjöri (eða smjörlíki).
Takið buffið af pönnunni og gerið sósuna.
Sósa
- 2 dl vatn
- 1-2 msk kálfakraftur (kalv fond)
- 2 dl rjómi
- 2 dl mjólk
- smá skvetta af sojasósu
- smá rifsberjahlaup
- maizena (til að þykkja)
Hellið vatninu á pönnuna sem buffin voru steikt í (ekki hreinsa pönnuna áður) og bætið kálfakraftinum saman við.
Ef þurfa þykir má síðan hella soðinu í gegnum sigti og setja það svo aftur á pönnuna.
Hrærið rjóma og mjólk saman við og leyfið að sjóða í nokkrar mínútur.
Smakkið til með sojasósu og rifsberjahlaupi.
Þykkið sósuna með maizena og látið parmesanbuffin að lokum í sósuna og sjóðið saman við vægan hita í nokkrar mínútur.
Njótið!