Jennie Lena er 37 ára og þáttakandi í The Voice í Hollandi. Hún hefur afburða rödd enda sneru allir dómararnir sér við um leið og hún hóf upp raust sína. Og dómararnir gátu hreinlega ekki haldið aftur af sér af ánægju á meðan hún söng.
Hún söng lagið Who´s Loving You sem Michael Jackson og Jackson 5 gerðu vinsælt hér um árið. Og hún rúllaði því upp.
Frábær frammistaða!