Ef þú ert að reyna að minnka neyslu á glúteni og korni en finnst erfitt að sleppa því að fá þér pizzu þá er þetta uppskriftin fyrir þig.
Þetta er málið í dag og hefur alveg slegið í gegn. Og með þessum blómkálsbotni geturðu notið þess að borða pizzu án þess að láta þér líða illa yfir því.
Það sem þarf
1/2 stórt blómkálshöfuð
1 bolli niðurrifinn mozzarella ostur
1/2 tsk ítalskt krydd
1 egg
2 msk niðurrifinn parmesan ostur
örlítið af salti og nýmuldum svörtum pipar
Aðferð
Hitið ofn að 220 gráðum.
Setjið blómkálið í matvinnsluvél og maukið alveg.
Takið úr vélinni og setjið í góða skál – og inn í örbylgjuofn í 7 til 8mínútur.
Bætið ostinum, egginu og kryddinu saman við blómkálsmaukið.
Blandið þessu vel saman og hrærið með gaffli.
Klæðið pizzaform með bökunarpappír og spreyið síðan með bökunarspreyi.
Setjið blönduna í formið og notið hendurnar til að þrýsta henni vel ofan í formið og slétta úr henni.
Látið þetta þá inn í ofninn og bakið í 10 til 15 mínútur.
Eftir það má setja það sem þú vilt á pizzabotninn, eins og t.d. pizzasósu, mozzarella- og parmesanost, tómata og basil. Síðan er pizzan sett inn í ofn og bökuð í um 10 mínútur.
Sjáðu betur hér hvernig þetta er gert