Við bíðum spennt eftir Cinema nýja disknum hans Andrea Bocelli sem er væntanlegur 23. október.
Á disknum er að finna tónlist úr kvikmyndum en það var gamall draumur Bocelli að gera slíkan disk.
Dúettinn sem hann syngur hér með Ariana Grande er að finna á nýja disknum en það er úr myndinni Once Upon a Time in America. Auk þess prýða diskinn meðal annars lög úr The Phantom of the Opera, West Side Story, The Godfather, Scent of a Woman og La vita è bella, svo fátt eitt sé nefnt.