Maður getur svo sannarlega sífellt bætt uppskriftum að góðum eftirréttum í safnið – enda ekkert skemmtilegt við það að bjóða alltaf upp á það sama.
Hér er einstaklega þægileg og einföld uppskrift að ljúffengri súkkulaðimús sem gaman er að bjóða upp á eftir helgarmatinn.
Það er hún Svava á Ljúfmeti og lekkerheit sem deilir hér með okkur uppskriftinni að þessari æðislegu Tobleronemús.
Það sem þarf
- 100 g Toblerone
- 100 g dökkt Toblerone eða suðusúkkulaði
- 4 eggjarauður
- 5 dl rjómi
Aðferð
Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði eða í örbylgjuofni.
Látið súkkulaðið kólna örlítið og hrærið síðan eggjarauðum saman við þar til blandan er slétt.
Léttþeytið rjómann og hrærið hann síðan saman við súkkulaðiblönduna í smáum skömmtum.
Setjið í skálar og látið standa í ísskáp þar til Tobleronemúsin hefur stífnað.
Skreytið með léttþeyttum rjóma og jarðarberjum ef vill.
Njótið!