Fita hefur haft slæmt orð á sér. En að bæta smá fitu í mataræðið gæti engu að síður verið lykilinn að því að grennast.
Í langan tíma var haldið að avókadó væri bara gott til að búa til guacamole, en nú er öldin önnur. Þessar litlu handsprengjur eru að sanna sig þegar kemur að heilsunni. En hvers vegna skildi það vera? Jú, þær eru svo ríkar af næringu og einnig fitu.
Á ekki að sneiða hjá fitu?
En fita! Á ekki að sleppa henni ef við viljum léttast? Málið er að fita gerir okkur ekki feit. Það á ekki að forðast að borða fitu.
Að hafa fitu með í mataræðinu gefur orku, ver líffærin, viðheldur frumunum og hjálpar líkamanum að vinna úr næringunni. Og það sem meira er að hún hjálpar líkamanum að brenna fitu. Þetta segir næringafræðingurinn Keri Glassman.
Á meðan mataræði, sem samanstendur af pizzum, frönskum, hamborgurum og fleiru, getur orsakað þyngdaraukningu og valdið heilsufarslegum vandamálum þá eru næringafræðingar búnir að kynna sér það að það er ekki fitan í þessum mat sem gerir þig feitan, heldur lélegt hráefni og illa meðhöndlaður matur.
Kaloríur og gæði hráefnis
„Í stað þess að gera einhverja eina tegund fæðu að óvini þá þurfum við að líta á kaloríufjöldann í staðinn og eins gæði hráefnis“ segir Tara Gidus en hún er næringaráðgjafi hjá American Dietetic Association.
Sú fita sem þú átt að borða ef þú ert að reyna að létta þig á að koma frá ómettaðri fitu. Fitu sem er í fiski, fræjum, hnetum, grænu grænmeti, ólífuolíu og auðvitað avókadó.
Árið 2009 birtist grein í the Brithis Journal of Nutrition sem segir að þeir sem að neyti ómettaðrar fitu hafa minni kviðfitu en þeir sem að neyta hennar ekki.
Fyrir ekki svo löngu síðan fór megrunarkúrinn low-fat/no-fat eins og eldur í sinu um heiminn. Framleiðendur markaðsettu sínar vörur á þennan hátt og viðskiptavinir gleyptu við þessu. En var þetta góð aðferð? Nei, hún var það ekki. Að neita líkamanum um fitu er það versta sem þú gerir. Þessi megrunarkúr leiddi til mikillar þyngdaraukningar hjá fólki í löndum eins og Bandaríkjunum og Bretlandi.
En af hverju fita?
Það vill nú þannig til að hún gefur matnum sem við borðum gott bragð. Þegar framleiðendur fjarlægja fitu úr mat og hlaða hann með sykri og salti verður hann bragðlaus og afar fitandi.
Fita brennir fitu
Líkaminn þarfnast þriggja næringarefna fyrir orku, kolvetni, prótein og fitu. Eitt gramm af fitu gefur tvisvar sinnum meiri orku en eitt gramm af kolvetni eða próteini. Ef það er engin fita í mataræðinu þá hefur þú enga orku til að brenna kaloríum. Líkaminn þarf orku til að efnaskiptin virki rétt.
Og það sem meira er að sú fita sem situr á maga, rassi og lærum hverfur ekki nema þú „kynnir“ hana fyrir nýrri fitu ef þú ert að grenna þig.
Fitan heldur þér saddri/söddum lengur
Fita er ekki auðmelt og heldur lengur til í meltingaveginum en margt annað. Vegna þessa, er maginn fyllri lengur og minni líkur á garnagauli.
Í raun er mataræði sem er ríkt af omega-3 fitusýrum, sem líkaminn fær einungis úr mat en ekki vítamínum, það besta til að fylla magann. Þú ert saddur/södd lengur og ferð ekki að ráfa í ísskápinn tveimur tímum eftir kvöldmatinn.
Fitan gleður okkur
Flest allir sem hafa farið í megrun vita að það er ferlega leiðinlegt. Að borða góðan mat gerir okkur hamingjusöm og…
Lesa meira HÉR