Auðvitað skiptir útlitið máli þegar kemur að því að vera aðlaðandi, en það er samt alls ekki allt.
Það er svo miklu meira sem konur horfa á í fari karlmanna sem gerir það að verkum að þær laðast að þeim.
Hér eru tíu atriði sem konum finnst aðlaðandi í fari karlmanna. Það skal þó tekið fram að listinn er ekki tæmandi, og þetta er ekki alhæfing. Sitt sýnist hverri konu í þessum efnum.
Hér eru þessi tíu atriði
1. Brosið
Fallegt bros er er stærsta aðdráttaraflið. Það getur gjörsamlega brotið niður allar varnir kvenna, jafnvel áður en maðurinn byrjar að tala. Fallegt bros virkar eins og segull á konur.
2. Karlmennskan
Konur taka að sjálfsögðu eftir líkamlegu ástandi karlmanna, en það sem skiptir þær máli er hvernig þeir bera sig. Hvernig þeir tala og koma fyrir, það er aðalmálið.
3. Öryggi
Sjálfsöryggi er alltaf aðlaðandi. Maður sem stendur staðfastur og er öruggur með sjálfan sig er eitthvað sem konur geta sjaldnast staðist.
4. Augnsamband
Maður sem sem kann að halda augnsambandi er maður sem er fær í mannlegum samskiptum. Að horfa í augun á konu á meðan hún talar er besta leiðin fyrir karlmann til að sýna henni að hann er að hlusta. Það lætur líka konunni líða eins og hún sé metin að verðleikum og elskuð. Það er aðlaðandi.
5. Góð lykt
Karlmaður sem ilmar vel er svakalega heillandi. Það er gjörsamlega aðferðin til að fá konur til að kikna í hjánum.
6. Tískuvitund
Það er aldrei verra ef karlmaður kann að klæða sig huggulega. Hafi einhvern vott af tískuvitund. Ekki beint að það séu fötin sem gera manninn kynþokkafullan heldur hvernig hann ber sig og sinn stíl með öryggi. Það heillar konur.
7. Samskiptahæfileikar
Að geta talað, átt eðlileg samskipti og bara haldið uppi samræðum er eitthvað sem konum finnst nauðsynlegt í fari karlmanna svo þeir teljist aðlaðandi.
8. Að geta eldað
Flestir karlmenn eru snillingar við útigrillið. Það heillar samt konur enn meira ef þeir kunna til verka í eldhúsinu líka.
9. Að sýna næmni
Að vera næmur karlmaður þýðir í raun að hann hefur tilfinningu fyrir samúð, trausti og trúnaði. Þetta finnst konum mikill kostur. Þegar kona treystir þér fyrir einhverju og deilir tilfinningum sínum þarf hún oft bara skilning og eyra sem hlustar.
10. Að hafa kímnigáfu
Það klikkar aldrei. Karlmaður sem hefur góðan húmor þykir með afburðum kynþokkafullur. Konum finnst maður með góða kímnigáfu mjög aðlaðandi.
Sigga Lund