Þetta hús sem sýnir stórkostlegt samspil náttúru og arkitektúrs er staðsett í svissnesku ölpunum. Eigendur hússins lögðu ríka áherslu á það við hönnuði þess að það myndi falla inn í náttúruna en ekki standa út úr. Og það hefur heldur betur tekist.
Einstaklega kósý
Húsið sem er einstaklega smekklega innréttað húsgögnum eftir þekkta hönnuði er hægt að fá leigt og kostar vikan um 350.000 krónur.
Ekki amalegt að dvelja í þessu húsi í skíðaferðalagi.
Þetta er alveg einstaklega kósý – hvort heldur það er um vetur eða sumar!