Það er alveg nauðsynlegt fyrir alla herra að kunna að gera góðan bindishnút enda ekkert smart við það að sjá vel klæddan mann með lítinn og illa hnýttan hnút.
Glæsilegur Windsor hnútur
Í hönd fer einmitt sá tími þar sem flestir karlmenn klæða sig upp og þá er nú betra að hafa þessi hluti á hreinu.
Í myndbandinu hér að neðan er farið skref fyrir skref í gegnum það hvernig Windsor bindishnútur er gerður – en hann er afar klassískur og fallegur.
Með þessar leiðbeiningar á hreinu ætti enginn herra að fara í gegnum hátíðirnar með illa hnýttan hnút.
Sjáðu myndbandið hér
Og svo er líka ágætt að fara í gegnum þessa teikningu