Það er mjög mikilvægt áður en þú lest lengra að þú ruglir því ekki saman að vera í sambandi með sterkri konu (eða vera giftur einni) – eða konu sem er með yfirgang og frekju. Þetta er alveg sitthvor hluturinn.
Sterkar konur eru stoltar, ekki frekar og þær láta alveg vita af því ef þær eru ekki sáttar. Þær sitja ekki aðgerðalausar og láta ekki hvað sem er yfir sig ganga. Ef þú einhvern tíma lendir í því að hitta konu sem er með frekju og yfirgang þá verður þú fljótur að sjá hver munurinn á sterkri og frekri konu er.
Þessi níu atriði einkenna m.a. sterkar konur
1. Hún nennir ekki neinum leikjum
Ekki búast við því að hún taki þátt í þessum hefðbundnu leikjum sem eiga sér stað í upphafi sambands. Ef þú hrífst af henni þá bara hringir þú í hana eða sleppir því alveg. Sterkar konur hafa engan tíma til að leika einhverja leiki, svo þú þarft ekki að bíða í tvo daga til að hringja í hana til að sýnast ekki of ágengur og svo framvegis. Henni finnst þetta barnalegt.
2. Hún vill ekki mann sem er óákveðinn og hikandi
Ekki búast við hinum hefðbundnu samtölum þegar þið farið út, eins og: „Hvert eigum við að fara? Hvert langar þig að fara? Hvað ert þú í stuði fyrir?“ Þannig virkar þetta ekki hjá henni. Ef þú ert að bjóða henni út þá gerir hún ráð fyrir því að þú vitir nákvæmlega hvert þið eruð að fara, að þú sért búinn að plana það, panta borð fyrirfram á veitingahúsi, græja leikhúsmiða og jafnvel ákveða hvert þið ætlið að fara til að fá ykkur drykki á eftir.
Það eru miklar líkur á því að hún sé undir mikilli streitu og þurfi að taka stórar og mikilvægar ákvarðanir í vinnunni alla daga. Þegar hún er ekki í vinnunni vill hún fá að vera hún sjálf. Hún vill slaka á og að þurfa ekki alltaf að vera sú sterka. En vittu til að þegar hún planar kvöldið er það útpælt og vel skipulagt. Þú getur verið viss um að eiga æðislegt kvöld í vændum.
3. Hún vill alvöru samræður
Sterkar konur vilja vera örvaðar vitsmunalega. Þær vilja djúpar alvöru samræður. Tilgangslaust þvaður um ekkert er ekki það sem hún vill.
4. Virðing er mjög mikilvæg
Að finna virðingu og að vita að hún er virt er mjög mikilvægt og eitt af því sem sterkar konur setja í forgang. Því skaltu ekki halda að þú getir hegðað þér eins og asni og komist upp með það.
5. Hún væntir þess að þú standir alltaf við þitt
Ef þú segist ætla að gera eitthvað, þá er betra að þú fylgir því eftir og standir við það. Henni finnst ekkert verra en menn sem taka ákvörðun um að gera eitthvað en standa svo ekki við það. Ef eftirfylgni er ekki þín sterka hlið skaltu ekki búast við að slá í gegn.
6. Að maðurinn hafi metnað er henni mikilvægt
Ef þig skortir markmið og hefur engan metnað í lífinu þá getur þú gleymt henni. Henni finnst ekkert verra en menn sem skortir metnað, því það sýnir ekkert annað en að þeir hafa í raun ekkert plan fyrir líf þitt. Fyrir henni er það að setja sér markmið og síðan að ná þeim það sem líf hennar snýst um.
7. Hún væntir þess að þú sért trygglyndur
Hollusta, tryggð og traust er eitthvað sem sterk kona dáist að í fari karlmanns. Ef þú hreppir hana þá skaltu vita að hún verður tryggasta manneskjan í lífi þínu. En hún mun krefjast þess sama af þér. Aldrei gera lítið úr henni í hópi af fólki eða niðurlægja hana á einhvern hátt á almannafæri. Málið er að ef þú ert tryggur færðu 100% tryggð frá henni. Hún mun alltaf verja þig og hrósa þér þegar þú heyrir ekki til, og fólk sem segir eitthvað slæmt um þig má vara sig.
8. Hún mun ekki sætta sig við letilíf
Ekki búast við því að hún sé til í að eyða hverri einustu helgi undir teppi með þér upp í sófa. Hugur hennar þarfnast örvunar. Það er samt ekki þannig að þú þurfir að fara í fjallgöngur, útilegur eða út á lífið um hverja einustu helgi. Huggulegt kvöld í rólegheitum heima á líka við. Það þarf bara að vera jafnvægi
9. Þú mátt búast við mikilli ástríðu
Ef þú ert nógu sterkur til að höndla sterka konu geturðu átt von á mikilli ástríðu í sambandi ykkar. Mikil ást, spennandi hlutir og umfram allt tryggð. Þú munt ekki finna betri vin, betri elskanda, betri leiðbeinanda en sterku konuna sem þú ert að hitta eða ert giftur nú þegar.
Eftir þennan lestur getur verið að þú hugsir:„Guð minn góður, til að vera með sterkri konu verð ég að vera þessi veikgeðja maður sem gerir ekkert annað en að þóknast henni í öllu?“
ALDREI HUGSA ÞANNIG. Sterk kona þarf á því að halda að maðurinn sé sterkur, með jafnmikinn metnað, ástríðufullur og tryggur eins og hún.
Sigga Lund
Greinin birtist á www.stevenaitchison.co.uk/blog