Ef ávanar þínir eru ekki að gera þér gott, þá eru þeir að stela frá þér hamingjunni.
Hér má finna algenga ávana sem gætu verið að ræna þig hamingjunni án þess að þú áttir þig á því.
1. Að vera sífellt að einblína á líf annarra og gleyma sínu eigin
Ekki vera svo sátt/ur að heyra sögur af velgengni annarra, og hvað allt gengur vel hjá þeim, að þú gleymir að vinna í eigin velgengni.
Opnaðu skrifblokkina og byrjaðu að skrifa eigin sögu velgengni. Þú hefur allt sem til þarf til að geta gert allt sem þig langar til. Ótrúlegustu hlutir gerast um leið og þú tekur stjórn á eigin lífi.
Ekki vera bara neytandinn – vertu líka sá/sú sem skapar.
Þetta þýðir að láta það ekki eftir sér að leyfa öllum öðrum að hugsa, tala og taka þínar ákvarðanir. Þetta þýðir að þú verður að fara að virða eigin skoðanir og hugmyndir og byrja að skrifa eigin sögu.
Hentu því sem skiptir þig engu máli en haltu í óskir þínar og öll stóru markmiðin, jú og auðvitað líka þessi litlu og gefðu þeim tíma daglega. Ef þú virkilega elskar það sem þú ert að gera þá er ekkert sem ætti að stoppa þig.
2. Að bíða eftir hinu fullkomna augnabliki
Ekki halda að það sé eitthvað til sem er hið fullkomna augnablik. Augnablik eru ekki fullkomin, þau eru það sem þú gerir þau að.
Allt of margir sitja og bíða eftir þessu fullkomna augnabliki til að byrja á verkefni eða einhverju sem er draumur þeirra.
Vaknið fólk! Það er ekkert til sem heitir hið fullkomna augnablik til að byrja á nýju verkefni.
Það eina sem getur gert augnablikið fullkomið ert þú! Hversu viljug/ur ertu að byrja, og þekkir þú þína eigin galla?
3. Alltaf í vinnunni en nærð ekki endum saman
Vinna án áhuga er eins og fangelsi. Þótt þú sért ekkert rosalega ánægð/ur í því starfi sem þú ert í, þá a.m.k þarftu að sýna vinnunni áhuga.
Þegar þú hugsar starf þitt eingöngu sem leið til að fá útborgað til að geta borgað reikningana þá áttu eftir að eyða lífinu í að óska þess að þú værir að lifa lífi einhvers annars.
Hugsaðu aðeins um þetta. Þetta er þitt líf; vinnan mun verða stór hluti af lífinu. Þetta snýst ekki allt um peninga; þetta snýst um þig.
Ekki láta starf þitt skilgreina þig. Snúðu þessu við, sestu niður og hugleiddu þetta: Ég mun skilgreina hvert mitt starf er eða verður.
Ef þér finnst þú föst/fastur í sama farinu, farðu þá út og leitaðu að þínu draumastarfi.
4. Að ala með sér haturstilfinningu
Eins og Martin Luther King Jr. Sagði „Darkness cannot drive out darkness; only light can do that.“
Hatur getur ekki rekið á burtu hatur; aðeins ástin getur það.
Í sannleika sagt þegar við erum full af haturstilfinningum þá taka þær yfir. Við gleymum af hverju við erum svona full af hatri, hvað eða hvern við hötum – við einfaldlega hötum til þess að hata.
Og auðvitað þá förum við einnig að hata okkur sjálf.
Allt og allir sem þú hatar tekur mikið pláss í höfði þínu og hjarta. Ef þú vilt losna við haturs hugsanir gagnvart einhverjum eða einhverju þá skaltu einfaldlega hætta að hata.
Í staðinn þá aftengir þú þig frá þessari neikvæðni og heldur fram á veginn – og alls ekki líta til baka.
5. Að ríghalda í áhyggjur, kvíða og hræðslu
Dag einn munt þú líta til baka og gera þér grein fyrir því að ekkert af öllum þessum áhyggjum og kvíða varð að veruleika – þetta var allt sem sagt tilefnislaust, þessar áhyggjur, hræðslan og kvíðinn.
Er ekki betra að gera sér grein fyrir þessu strax?
Þegar þú lítur til baka yfir síðast liðin ár; hversu mörg tækifæri á gleði og skemmtun eyðilagðir þú fyrir sjálfri/sjálfum þér vegna endalausra áhyggna og neikvæðni?
En við breytum ekki fortíðinni, heldur tökumst við á við daginn í dag og framtíðina á jákvæðum nótum og veltum okkur alls ekki upp úr því sem er búið og gert.
Þú munt finna að það verður nauðsynlegt að sleppa hinum ýmsu hlutum sem draga þig niður og liggja þungt á hjarta og sál.
Slepptu þeim! Ekki festast í þessu.
Það er nefnilega svo ótrúlega auðvelt að njóta lífsins og lifa í augnablikinu sama hvert ástandið er. Þetta snýst allt um að fletta af sér „lögum“ af vitleysu, losa sig við þessi „lög“ því þau eru bara að draga þig lengra og dýpra niður.
Slepptu takinu á áhyggjum og kvíða, af heift og öfund og slepptu takinu á því að þú þurfir alltaf að hafa rétt fyrir þér og helst stjórna öðrum.
Slepptu takinu af flottræfilshætti og þinni þörf fyrir að allt sé gert eftir þínu höfði.
Undir öllum þessum „lögum“ er hamingjusöm, afkastamikil manneskja.
6. Að dvelja við erfiðleikana
Slæmur dagur er bara slæmur dagur. Veldu að gera hann ekki að einhverju öðru. Tími mótlætis mun óhjákvæmilega hafa áhrif á þær aðstæður sem þú býrð við eða jafnvel vinnuna.
Þú þarft ekki að láta mótlætið hafa áhrif á það hver þú ert eða hvert þú stefnir. Láttu bakslagið ekki hafa áhrif á þig, heldur skaltu aðlagast því en ekki gera meira úr því en þarf og alls ekki gera það að vandamáli í þínu lífi.
Hver dagur hefur sína lexíu og ný tækifæri. Það er ávallt tækifæri til að taka skrefið fram á við á þeirri leið sem þú hefur valið þér. Stundum gerast hlutir sem þú getur ekki forðast. En þú hefur valið! Ef ekki hvenær, heldur þá hvernig þú stígur burt frá mótlætinu.
7. Endalaust að eltast við skammvinna ánægju
Það eru til tvær tegundir af ánægju – skammvinn og varanleg.
Þessi skamvinna snýst yfirleitt um hluti, eins og að kaupa eitthvað fallegt. Á meðan þessi varanlega snýst um þig og að auka á vellíðan hugans.
Stundum getur verið erfitt að greina á milli þessara tveggja en þegar fram líða stundir þá er augljóst að seinni möguleikinn er langtum betra val.
8. Að ætla sér of mikið í einu
Ef þú vilt breyta einhverju í heiminum, byrjaðu þá á því sem er þér næst. Að ætla sér að breyta helst öllu í einu er ekki hægt og hugsunin um það mun fylla þig af stressi.
Hins vegar getur þú gert fáein líf léttari með því að hjálpa þeim sem á þurfa að halda og er það mun auðveldara heldur en að hafa allar heimsins áhyggjur á herðunum.
Þú þarft bara að einbeita þér að einni manneskju í einu og byrja á þeirri er stendur þér næst.
Ef þú vilt breyta skapi einhvers þá þarf helst…
Lesa meira HÉR