Já takk, við erum sko meira en til í þessa flottu greiðslu sem hægt er að henda upp á 5 mínútum.
Nú þegar jól og áramót eru á næsta leiti eru margar konur sem kjósa að setja hárið upp af því tilefni en fæstar höfum við mikinn tíma í slíkt á þessum tíma.
Fyrir uppteknar konur er það auðvitað snilld að geta skellt hárinu svona glæsilega upp þegar tíminn er lítill.
Bæði smart og klassískt!