Þessar fæðutegundir eru ferskar og fullar af næringu og innihalda fáar hitaeiningar.
Borðaðu vatnið þitt
Samkvæmt gamalli reglu þá áttu að drekka átta vatnsglös á dag, og sumir mæla með meiru. Þetta getur oft verið örlítið erfitt þannig að því ekki borða vatnið sem líkaminn þarf að nota yfir daginn.
Um 20% af inntöku á vatni kemur úr fæðunni okkar, sérstaklega ávöxtum og grænmeti.
Vatnið er okkur öllum afar mikilvægt og skiptir aldur þar engu um.
Gúrkan
Hún er 96,7% vatn.
Gúrkan er ríkust af vatni þegar miðað er við annan mat. Hún er fullkomin í salatið eða bara skella henni í lengjur eða sneiðar og narta í yfir daginn.
Það má t.d. nota hana með jógúrt og ef þú gerir það þá endilega prófaðu þetta: Notaðu fitulausa jógúrt, myntu og ísmola og gerðu gúrkusúpu. Súpur eru alltaf fullar af vökva.
Iceberg kál
Vatnsinnihald er 95,6%.
Við Íslendingar erum vel kunnug iceberg kálinu. Oft er litið örlítið framhjá því þar sem læknar mæla frekar með dökkgræna grænmetinu. En iceberg inniheldur þetta mikla magn af vatni og ætti því að vera fastur liður í salatinu okkar.
Ef þú ætlar að gera t.d. tacos, prufaðu þá að nota iceberg blöð til að rúlla tacoinu upp í stað skeljanna.
Sellerí
Vatnsinnihald er 95,4%.
Það hafa eflaust margir heyrt að sellerí innihaldi neikvæða kaloríutölu, en þetta er ekki alveg satt. Í stilk af sellerí eru um 6 kaloríur. Einnig er það ríkt af trefjum. Nartaðu í sellerí í stað súkkulaðis.
Radísur
Vatnsinnihald er 95,3%.
Radísur eru afar góðar í salatið þitt. Þær gefa skemmtilegt bragð og eru fullar af vökva. Einnig eru radísur fullar af andoxunarefnum eins og catechin sem má einnig finna í grænu te.
Tómatar
Vatnsinnihald er 94,5%.
Niðurskornir tómatar eru mikið notaðir í salöt og með öðrum mat. En ekki gleyma þessum litlu sætu, kirsuberjatómötum og fleirum. Þessir litlu eru nefnilega svo tilvalið nasl í vinnu og skóla. Skella þeim í box og taka með til að hafa í stað vatns suma daga.
Græn paprika
Vatnsinnihald er 93,9%.
Paprikan í allri sinni litadýrð er rík af vatni, en þessi græna er ríkust. Og þrátt fyrir að margir haldi annað að þá er græna paprikan hlaðin andoxunarefnum.
Paprika er frábært snakk, ef krakkana langar í nart fyrir kvöldmat þá skera bara niður eins og eina græna papriku og leyfa þeim að borða hana því það skemmir ekki matarlystina.
Blómkál
Vatnsinnihald er 92,1%.
Ekki láta ljósa lit blómkálsins plata þig, þessi sætu hvítu blóm eru stútfull af vítamínum og öðrum afar góðum…
Lesa meira HÉR