Það eru margir sem segja að þeim líði vel eftir að hafa grátið. Hvort sem það er vegnar sorgar, sambandsslita eða einfaldlega vegna pirrings eftir erfiðan dag.
En af hverju ætli það sé gott að gráta?
Tilfinningaleg tár eða tár sem tengjast stressi
Rannsókn sem Dr. William H. Frey, lífefnafræðingur hjá St Paul-Ramsay Medical Centre í Minnesota stóð fyrir sýnir fram á þá augljósu staðreynd að munur er á tárum sem tengjast tilfinningum og þeim sem tengjast stressi. Tár sem tengjast tilfinningum innihalda prótein og hormóna sem heita prolactin, adrenocorticotropic og leucine enkephalin (sem er náttúrulegur verkjastillir).
Hvernig tilfinningalegu tárin hjálpa
Tár sem tengjast tilfinningum og þau sem tengjast stressi eru talin hjálpa okkur í gegnum erfiða tíma á margan hátt. Líkamlega þá er talið að þau hreinsi óæskileg efni úr líkamanum á meðan tilfinninga tárin gefa okkur smá losun sem er í raun æskileg.
Að losa um stress
Það að gráta léttir á stressi. Stress getur haft slæm áhrif á heilsuna og hefur verið tengt við mörg heilsutengd vandamál eins og t.d. hjartasjúkdóma, háan blóðþrýsting, sykursýki II og offitu. Þegar þú ert í uppnámi eða stressuð þá er mikið ójafnvægi á…
Lesa meira HÉR