Hér eru 7 góðar ástæður fyrir því að borða avókadó á hverjum einasta degi.
1. Góð fita
Avókadó, eða lárperan, er stútfull af góðri fitu – sömu góðu fitunni og er í ólífuolíu. Þess vegna er lárperan sérstaklega góð fyrir hjartaheilsu okkar.
2. Gerir þig mettan
Þá getur þessi góða fita og auk þess trefjarnar í lárperunni haft hemil á hungrinu.
Rannsóknir sýna að máltíðir og réttir sem innihalda avókadó eru saðsamir og gera okkur saddari lengur.
3. Góð næringarefni
Lárperan er stútfull af góðum næringarefnum og er ein af þessum fæðutegundum sem hefur verið kölluð ofurfæða.
4. Fyrir heilsuna
Lárperan er bæði góð fyrir líkama sem heila. Næringarefni hennar geta haft jákvæð áhrif til varnar hjartasjúkdómum, sykursýki, krabbameini og sjúkdómum sem leggjast á heilastarfsemina.
5. Góða kólesterólið
Þá vinna næringarefni lárperunnar á vonda kólesterólinu en hækka það góða. Hún kemur reglu á blóðsykurinn og minnkar bólgur í líkamanum.
6. Með öðrum fæðutegundum
Avókadó passar einstaklega vel með öðrum mat og það er mjög einfalt að finna rétti til að koma því inn í fæðuna. Auk þess er það svo bragðgott að vel er hægt að borða það eitt og sér.
Og það sem meira er, þá getur lárperan náð því besta út úr annari fæðu, eins og t.d. matvælum sem innihalda karótín en hún hjálpar til við að losa þau efni úr fæðunni. En þessi efni þykja einstaklega góð til varnar krabbameini.
7. Endalausir möguleikar
Möguleikar avókadó eru endalausir og er þess vegna hægt að byrja daginn á þessari góðu fæðu. Það má til dæmis nota avókadó í smoothie, ofan á brauð, með eggjunum, í salatið, með kínóa, á hamborgarann, sneiða það niður með fiskinum og kjötinu eða búa til guacamole.