Besti vinur mannsins eldist hraðar en maðurinn… því miður! Það getur nefnilega verið erfitt að sjá hundinn sinn eldast hratt – en svo er eins og sumir hundar eldist ekkert, þ.e.a.s. í útliti.
Ljósmyndarinn Amanda Jones hefur myndað hunda í tuttugu ár en það var hundurinn hennar sem varð kveikjan að þessu verkefni og þeirri bók sem þessar myndir hér prýða. Reyndar dó Lily, hundurinn hennar meðan bókin var í vinnslu (síðasta myndin, af Lily, hér að neðan).
Bókin Dog Years: Faithful Friends Then & Now sýnir líf 30 hunda þá og nú. Á meðan sumir hundar virðast lítið eldast má greinilega sjá merki öldrunar hjá öðrum. Það má m.a. sjá í augum þeirra, kjálkanum og á gráu hárunum.
En myndirnar tala sínu máli – og þær eru svo fallegar!
Þetta er Fred 2 ára og síðan 10 ára
Þetta er Abigale 5 mánaða og 8 ára
Kayden and Brodie, 11 mánaða og 5 ára – og síðan 7 ára og 12 ára
Og hér er Corbet 2 ára og 11 ára
Þetta er Briscoe 1 árs og síðan 10 ára
Maddy 5 ára og 10 ára
Og að lokum Lily 8 mánaða og 15 ára