Já, okkur finnst marengs góður og auðvitað þar með talið pavlovur líka.
Þess utan þá passa bæði hefðbundinn marengs og pavlovur eitthvað svo vel við hátíðleg tækifæri – enda hægt að leika sér endalaust með framsetningar og uppskriftir.
Draumi líkust
Þessi pavlova hér er draumi líkust og hráefnin passa svo fullkomlega saman. Svo er hún auðvitað dásamlega falleg á borði. Það eiga allir eftir að falla í stafi við fyrsta bita!
Til að flýta fyrir er kjörið að baka botnana kvöldið áður en það á að bera kökuna fram. Setja hana síðan saman samdægurs og geyma í ísskáp þar til hún er borin fram.
Það var hún Svava á Ljúfmeti og lekkerheit sem töfraði þessa dásemd fram.
Það sem þarf
Súkkulaðimarengsbotnar
- 50 g dökkt súkkulaði (70%)
- 6 stórar eggjahvítur
- 3 dl sykur
- 3 msk kakó
- 1 msk maizena mjöl
- 1 tsk hvítvínsedik
Mascarponekrem
- 250 g Mascarpone ostur
- 2-3 msk sykur
- 5 dl rjómi
- 2 msk espresso
Fylling
- Maltesers
- Daimkúlur
- Ristaðar pekanhnetur (ristaðar í 175° heitum ofni í 5 mínútur)
Súkkulaðisósa
- 3/4 dl sykur
- 1 dl sterkt kaffi
- 3 msk kakó
Aðferð
Marengsbotnar
Brjótið súkkulaðið í bita og bræðið það varlega yfir vatnsbaði eða í örbylgjuofni. Látið kólna.
Hitið ofninn í 175°. Teiknið tvo eða þrjá hringi sem eru um 15 cm í þvermál á bökunarpappír. Staðsetjið þá eins langt frá hvor öðrum og mögulegt er. Snúið bökunarpappírnum við og leggið hann á ofnplötu.
Þeytið eggjahvíturnar þar til þær byrja að mynda froðu og bætið þá sykrinum smátt og smátt saman við. Þeytið áfram þar til blandan er orðin stífþeytt. Það á að vera hægt að halda skálinni á hvolfi án þess að marensdeigið renni úr henni. Sigtið kakó og maizenamjöl út í deigið, bætið hvítvínsediki saman við og blandið öllu vel saman. Hrærið að lokum bræddu súkkulaðinu gróflega í marensdeigið.
Skiptið marengsdeiginu jafnt á hringina á bökunarpappírnum. Botnarnir eiga eftir að renna aðeins út þegar þeir bakast. Setjið marengsinn í ofninn og lækkið hitann í 125°. Bakið marengsinn í 60-75 mínútur. Botnarnir eiga að vera harðir og stökkir við kantana en seigir í miðjunni. Slökkvið á ofninum en látið botnana vera áfram á eftirhitanum í honum, með ofnhurðina hálfopna þar til ofninn er orðinn kaldur.
Mascarponekrem
Hrærið mascarponeostinn og sykurinn saman þar til blandan verður mjúk og kremkennd. Bætið rjómanum saman við og þeytið þar til blandan þykknar. Bætið espresso saman við og þeytið áfram þar til það hefur blandast saman við kremið.
Súkkulaðisósa
Blandið öllu saman í pott og látið suðuna koma upp. Sjóðið í 3-5 mínútur eða þar til sósan hefur tekið að þykkna aðeins. Látið kólna.
Samsetning kökunnar
Leggið fyrsta botninn varlega á kökudisk og smyrjið helmingnum af mascarponekreminu yfir. Stráið grófhökkuðu maltesers, daimkúlum og ristuðum pekanhnetum yfir. Leggið seinni botninn yfir og smyrjið því sem eftir er af mascarponekreminu yfir. Skreytið með maltesers, daimkúlum, pekanhnetum og súkkulaðisósu. Látið tertuna gjarnan standa í ískáp í að minnsta kosti klukkutíma áður en hún er borin fram.