Glerkrukkur er hægt að nota í eitt og annað og ef út í það er farið eru möguleikarnir nærri endalausir.
Þetta getur verið ódýr og einföld leið í garðinn, í veisluna og inn á heimilið.
Það er um að gera að láta hugmyndaflugið ráða.
Hér eru nokkrar sniðugar hugmyndir sem hægt er að dunda sér við að útbúa
Úti í garði, á pallinn eða í sumarbústaðinn.
Það sama á við hér – og þetta er sniðugt fyrir garðpartýið.
Sætt á pallinn og svalirnar.
Og þetta er líka alveg tilvalið í garðveisluna.
Svona má taka krukkur og skreyta. Og þessa skreyttu krukku má nota bæði úti og inni – og sómir hún sér vel sem lítill blómavasi.
Sniðug, flott og öðruvísi ljós.
Þetta er notað til að gefa góða lykt í húsið, hér eru notaðar sítrónur, rósmarín og vanilla.
Skemmtilegt og smart undir kryddjurtirnar.
Og undir salatið til að taka með sem nesti í vinnuna eða í ferðalagið.
Sem góð hirsla inni á baði.
Og önnur útgáfa af baðhirslu.